Sefur barnið ekki? Nýi elskhuginn heldur fyrir þér vöku? Þynnka? Kæling, raki og ljómi eru lykilorðin til að hressa upp á augnsvæðið og hér eru nokkur af þeim augnkremum sem eiga það sameiginlegt að hressa nær samstundis upp á útlitið.
AUGNKREM GEGN ÞROTA
Þegar augun eru þrútin og bólgin er fátt betra en góð kæling til að draga saman æðarnar. Innihaldsefni á borð við koffín og andoxunarefni geta flýtt fyrir að leysa upp eða takmarka vökvasöfnunina við augun. Hið nýja Estée Lauder Advanced Night Repair Eye Concentrate Matrix er gelkennd formúla sem styrkir húðina, gerir við hana og veitir henni djúpan raka og næringu.
RAKAGEFANDI AUGNKREM GEGN FÍNUM LÍNUM
Aukin vatnsdrykkja og rakagefandi augnkrem getur dregið verulega úr fínum línum í kringum augun því oft er það vökvaskortur sem ýtir undir þessar línur. Nýjasta augnkremið frá Bare Minerals nefnist Skinlongevity Vital Power Eye Gel Cream og státar af áhugaverðri formúlu sem er rík af peptíðum, hýlúrónsýru, steinefnaríkum jurtum og andoxunarefnum. Sömuleiðis er First Aid Beauty Eye Duty Triple Remedy A.M. Cream Gel vinsælt til þess að veita augnsvæðinu bæði kælingu og raka en formúlan inniheldur m.a. peptíð og þara til að styrkja húðina.
AUGNKREM GEGN BAUGUM
Fjölmargar ástæður geta verið á bak við myndun bauga undir augunum og má þar nefna t.d. erfðir, svefnleysi, kvef, járnskort og margt fleira. Ljómandi hyljari er skjótasta leiðin til að losna við baugana en til eru augnkrem sem sérstaklega vinna gegn baugamyndun og má þar fyrst nefna Helena Rubinstein Force-C Eye Mask & Daily Care en formúlan inniheldur þrjár gerðir af C-vítamíni sem er eitt öflugasta innihaldsefnið gegn baugum. Bæði geturðu notað formúluna sem augnkrem eða sem maska undir augun. Sepai Light Circles Eye Serum er sömuleiðis mjög virk formúla sem dregur úr ásýnd blárra, grárra og gulra tóna undir augunum. C-vítamín, þari og PHA-sýra vinna saman að því að koma húðinni í sitt besta ástand.
MARGÞÆTT AUGNKREM
Ef allt er í steik getur reynst þörf fyrir að leita á náðir The Eye Concentrate frá La Mer. Formúlan vinnur sérstaklega gegn baugum, þurrki, fínum línum og hrukkum ásamt því að veita kælandi áferð með málmkúlunni sem kremið er borið á augnsvæðið með. Náttúruleg extrökt, steinefni, peptíð og rakagefandi innihaldsefni sameina styrkleika sína í þessari ofurformúlu.
VIRKARI AUGNKREM GEGN DÝPRI HRUKKUM
Húðin á augnsvæðinu er talsvert þynnri en á öðrum stöðum og sýnir öldrunarmerki talsvert fyrr en á öðrum svæðum andlitsins. Það er mjög genatískt hvernig og hvar öldrunarmerki koma fram á húðinni og auðvitað tengist það einnig lífsstíl en hægt er að hægja á þessari þróun með öflugum augnkremum sem notuð eru reglulega. Neostrata Skin Active Eye Therapy er sérlega öflugt augnkrem sem notar margþætta aðferð til að styðja við langlífi stofnfruma húðarinnar og auka kollagen-framleiðslu hennar. Það inniheldur stofnfrumu-extrakt úr eplum ásamt peptíðum og NeoGlucosamine sem styðja við myndun kollagens. Koffín, hýalúrónsýra og E-vítamín vinna svo saman til að draga úr þrota, baugum og styrkja húðina. Ný útgáfa af Elizabeth Arden Advanced Ceramide Capsules For Eyes er einnig áhugaverð formúla sem byggir á keramíðum til að styrkja húðina. Vegna þess að hver skammtur kemur í lokuðu hylki, sem er niðurbrjótanlegt, inniheldur formúlan fá en öflug innihaldsefni og er laus við rotvarnarefni.
FLJÓTVIRK AUGNMEÐFERÐ
Til eru tauskífur sem koma tilbúnar í formúlu virkra innihaldsefna og settar eru undir augun í um 15 mínútur. Shiseido Benefiance WrinkleResist24 Pure Retinol Express Smoothing Eye Mask er ein af slíkum formúlum og lofar betra útliti eftir stundarfjórðung. Inniheldur ofurefnið retinol, form af A-vítamíni, sem þykir eitt af áhrifaríkustu innihaldsefnunum gegn hrukkum og misfellum í húðinni. Notuð er Pure Retinol-míkrótækni til þess að ná djúpt ofan í húðlögin.