Laxar drepist í auknum mæli vegna kulda

Eldiskvíar á Vestfjörðum. Mynd úr safni.
Eldiskvíar á Vestfjörðum. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Lax­ar í kví­um Arn­ar­lax í Arnar­f­irði hafa und­an­farið drep­ist í aukn­um mæli, vegna kulda og meðhöndl­un­ar á fiski í slát­ur­kví. Hef­ur dauði fisk­ur­inn safn­ast sam­an í botni kvía og hon­um svo verið dælt um borð í báta Arn­ar­lax.

Þetta kem­ur fram í svari upp­lýs­inga­full­trúa Um­hverf­is­stofn­un­ar við fyr­ir­spurn 200 mílna.

Seg­ir í svar­inu að Um­hverf­is­stofn­un hafi sent Arn­ar­laxi fyr­ir­spurn þann 7. mars vegna ábend­ing­ar sem barst stofn­un­inni um fugla­ger við at­hafna­svæði fyr­ir­tæk­is­ins í Hrings­dal, og fengið of­an­greind svör.

Við þetta get­ur mynd­ast fitu­skán á yf­ir­borði kví­ar sem fugl­ar reyna að ná í. Líf­ræn­um úr­gangi er skv. því sem fram kem­ur í svör­um frá Arn­ar­laxi safnað í lokaða frystigáma og hann svo nýtt­ur í mjölvinnslu. All­ar kví­ar Arn­ar­lax eiga að vera með fugla­net, en netið er fjar­lægt meðan tæm­ing stend­ur yfir,“ seg­ir í svar­inu auk þess sem bent er á að þetta skýri aukna um­ferð og vinnu við svæðið og ágang fugla.

Bent er á að ekki sé gerð krafa um að …
Bent er á að ekki sé gerð krafa um að fyr­ir­tæki upp­lýsi stofn­un­un­ina um fiski­dauða. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Ekki ástæða til frek­ara eft­ir­lits

„Um­hverf­is­stofn­un ger­ir ráð fyr­ir að fara nán­ar yfir ráðstaf­an­ir rekstr­araðila í eft­ir­liti. Rekstr­araðili starfar eft­ir ASC um­hverf­isstaðlin­um sem er alþjóða staðall í fisk­eldi og ger­ir kröf­ur um góðar skrán­ing­ar á fram­leiðslu og af­föll­um, þ.m.t. dauðfisk.“

Mun stofn­un­in hefja aukið eft­ir­lit með fyr­ir­tæk­inu?

„Stofn­un­in mun fara yfir gögn fyr­ir­tæk­is­ins í reglu­bundnu eft­ir­liti en ekki er ástæða til frek­ara eft­ir­lits að svo stöddu þar sem ekki er um meng­un að ræða, held­ur dauðfisk sem er meðhöndlaður skv. verklags­regl­um fyr­ir­tæk­is­ins og Um­hverf­is­stofn­un met­ur full­nægj­andi.“

Mikið magn get­ur valdið meng­un

Bent er á að ekki sé gerð krafa um að fyr­ir­tæki upp­lýsi stofn­un­un­ina um fiski­dauða nema ef hætta sé á að frá hon­um ber­ist meng­un, sem geti orðið, sé um mikið magn að ræða og hreinsi­búnaður nái ekki að viðhalda hreins­un í kvínni.

„Ekki er talið að um það sé að ræða í þessu til­viki. Rekstr­araðili upp­lýsti stofn­un­una sjálf­ur um fiski­dauða er haft var sam­band við hann vegna ábend­ing­ar um fugla við kví­arn­ar.“

mbl.is