Enn drepast fiskar í stórum stíl

Lax að lokinni slátrun úr laxeldi. Mynd úr safni.
Lax að lokinni slátrun úr laxeldi. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Arn­ar­lax brást rétt við tjóni á sjókví­um sín­um í kjöl­far óveðurs sem gekk yfir 11. fe­brú­ar, með því að setja af stað verk­ferla til að koma í veg slysaslepp­ingu og til­kynna tjónið til Mat­væla­stofn­un­ar og fram­leiðenda búnaðar. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Mat­væla­stofn­un.

Seg­ir í henni að ekki sé talið að hægt hefði verið að koma í veg fyr­ir tjónið og voru viðbrögð við hæfi miðað við aðstæður.

Sýk­ing­ar verri við lág­an sjáv­ar­hita

„Krufn­ing á dauðum fisk­um sem flutt­ir höfðu verið úr laskaðri sjókví Arn­ar­lax í Tálknafirði leiddi í ljós ein­kenni sem benda til blóðeitr­un­ar af völd­um sára­sýk­inga. Við flutn­ing­inn úr laskaðri sjókví í aðrar kví­ar skadd­ast fisk­ur­inn á roði, sporði og ugg­um og verður ber­skjaldaður fyr­ir sýkl­um á roði og í um­hverfi hans. Við lág­an sjáv­ar­hita verða slík­ar sýk­ing­ar verri,“ seg­ir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­inn­ar.

„Af­föll fiska í um­ræddri kví í Tálknafirði voru í upp­hafi 53.110 fisk­ar af 194.259. Enn eru fisk­ar að drep­ast í stór­um stíl úr þeim hópi vegna at­viks­ins og verður um­fang ekki ljóst fyrr en eft­ir nokkra mánuði. Gera má ráð fyr­ir tals­verðum af­föll­um á þeim tíma.“

Fiskeldiskvíar á Vestfjörðum. Geta Arnarlax til að fjarlægja og eyða …
Fisk­eldisk­ví­ar á Vest­fjörðum. Geta Arn­ar­lax til að fjar­lægja og eyða dauðum fiski á hefðbund­inn hátt er sögð hafa verið nægj­an­leg vegna at­vik­anna. mbl.is/​Krist­inn Ingvars­son

Áætl­un í sam­ræmi við reglu­gerð

Geta Arn­ar­lax til að fjar­lægja og eyða dauðum fiski á hefðbund­in hátt er sögð hafa verið nægj­an­leg vegna at­vik­anna. 

„Sett­ar hafa verið gúmmí­hlíf­ar á króka á hand­riðum sjókvía til að fyr­ir­byggja að þeir geti rifið nótar­poka sem lyft hef­ur verið upp á þá fyr­ir slátrun, eins og gerðist í Arnar­f­irði. Verklags­regl­ur fyr­ir­tæk­is­ins hafa verið upp­færðar m.t.t. þess.“

Þá er bent á að viðbragðsáætl­un Arn­ar­lax sé í sam­ræmi við reglu­gerð um fisk­eldi, en fyr­ir­tækið hafi ekki skrif­leg veðurfars­leg viðmið um hvenær heim­ilt sé að koma með bát að eldisk­ví. Krefst Mat­væla­stofn­un úr­bóta á því.

mbl.is