Ekki metin áhrif á íslenskan lax

Frá lax­eldi á Vestfjörðum. Mynd úr safni.
Frá lax­eldi á Vestfjörðum. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Lík­an sem norsk­ir vís­inda­menn hafa þróað og sýn­ir hvernig erfðaeig­in­leik­ar eld­islax hafa áhrif á villta laxa­stofna snýst ein­göngu um norsk­an eld­islax og norsk­an villi­lax, seg­ir í til­kynn­ingu frá Icelandic Wild­li­fe Fund. Það nær ekki yfir áhrif erfðablönd­un­ar eld­islax af norsk­um stofni við ís­lenska laxa­stofna.

Til­efnið er frétt í norska blaðinu Dagens Nær­ingsliv um að næst­um eng­ar breyt­ing­ar sjá­ist á 50-100 árum í stærð laxa, fram­leiðslu ár­inn­ar eða end­ur­heimt­um úr sjó þótt þangað gangi eld­islax sem nem­ur 5-10% af stofni ár­inn­ar. Kevin Glover pró­fess­or sem stjórnaði gerð lík­ans­ins staðfesti í sam­skipt­um við Icelandic Wild­li­fe Fund að líkanið ætti ekki við um aðstæður á Íslandi. Eldi á norsk­um ræktuðum laxi á Íslandi feli í sér aukna áhættu vegna viðbót­ar erfðafræðilegra þátta sem ekki er tekið til­lit til í líkan­inu.

Icelandic Wild­li­fe Fund hafn­ar því al­farið í yf­ir­lýs­ingu sinni að til­raun um áhrif erfðablönd­un­ar norsks eld­islax á villta laxa­stofna fari fram í ís­lenskri nátt­úru.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina