Óveruleg áhrif laxeldis í Arnarfirði

Fóðurskip mun fylgja laxeldi Arctic Sea Farm í Arnarfirði eins …
Fóðurskip mun fylgja laxeldi Arctic Sea Farm í Arnarfirði eins og algengast er orðið þar sem laxeldi er stundað í stórum stíl. mbl.is/Helgi Bjarnason

Fyr­ir­hugað eldi Arctic Sea Farm í Arnar­f­irði mun hafa veru­lega já­kvæð áhrif á hagræna og sam­fé­lags­lega þætti. Áhrif á botn­dýra­líf á nærsvæði kví­anna verða tals­vert nei­kvæð en þau verða þó staðbund­in og aft­ur­kræf. Heild­arniðurstaða frummats­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins sem Skipu­lags­stofn­un hef­ur nú kynnt er sú að í flest­um til­vik­um verða áhrif eld­is­ins óveru­leg.

Í frummats­skýrsl­unni eru met­in áhrif 4.000 tonna eld­is á laxi í sjókví­um á þrem­ur eld­is­svæðum í Arnar­f­irði.

Lang­ur und­ir­bún­ings­tími

Und­ir­bún­ing­ur hef­ur staðið lengi yfir. Fyrst var hugs­un­in að ala þar regn­bogasil­ung og byrjað var á mat­inu í sam­vinnu við Fjarðalax sem fyr­ir var með eldi í Arnar­f­irði. Fjarðalax sam­einaðist síðar Arn­ar­laxi. Arctic Sea Farm vinn­ur nú að mat­inu sjálf­stætt og hygg­ur á lax­eldi. Sam­kvæmt bráðabirgðamati Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á burðarþoli Arn­ar­fjarðar er hægt að vera með allt að 20 þúsund tonna fram­leiðslu þar.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: