Skora á umhverfisráðherra

Horft yfir neðsta svæði Víðidalsár, með Harðeyrarstreng og Dalsárósi, og …
Horft yfir neðsta svæði Víðidalsár, með Harðeyrarstreng og Dalsárósi, og til Hópsins. Mynd úr safni. mbl.is/Einar Falur

Veiðifé­lag Víðidals­ár mót­mæl­ir öll­um hug­mynd­um um út­gáfu eld­is­leyfa á norsk­um kyn­bætt­um laxi í opn­um sjókví­um, bæði á Vest­fjörðum og Aust­fjörðum. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu sem fé­lagið hef­ur sent frá sér í kjöl­far aðal­fund­ar þess sem hald­inn var á mánu­dag.

Í álykt­un fund­ar­ins, sem samþykkt var sam­hljóða, seg­ir að Haf­rann­sókna­stofn­un hafi lagst gegn „stjórn­lausu lax­eldi“ í sjókví­um í áhættumati sínu og er stofn­un­in sögð telja að það geti stórskaðað villta laxa­stofna lands­ins.

„Þá bend­ir fund­ur­inn á ná­lægð við verðmæt­ar laxveiðiár allt í kring­um landið og þau miklu nátt­úru­verðmæti sem þar eru í húfi. Fund­ur­inn átel­ur Skipu­lags­stofn­un fyr­ir hringlanda­hátt svo sem í Ísa­fjarðar­djúpi, þegar stofn­un­in dró til baka álit sitt ný­verið þar sem stofn­un­in lagðist gegn fyr­ir­huguðu lax­eldi,“ seg­ir í álykt­un fund­ar­ins.

„Fund­ur­inn skor­ar á nú­ver­andi um­hverf­is­ráðherra Guðmund Inga Guðbrands­son, að sitja ekki hjá í þessu mik­il­væga nátt­úru­vernd­ar­máli.“

mbl.is