„Þau svör sem við höfum fengið frá fulltrúum ríkisins eru að þau vilji ekki viðurkenna þetta sem atvinnusjúkdóm, veikindi vegna myglu. Það hefur alveg farið inn í allar stofnanir þar sem mygla er til staðar,“ segir Erna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri BHM í samtali við mbl.is.
Starfsmenn Barna- og unglingadeildar Landspítala hafa ekki fengið greiddan kjarasamningsbundinn rétt sinn vegna atvinnusjúkdóms, þar sem Landspítali, rétt eins og aðrar ríkisstofnanir, viðurkenna ekki veikindi vegna myglu sem atvinnusjúkdóm.
RÚV greindi frá þessu í dag og hafði eftir Ernu að málaferli vegna þessara mála væru óumflýjanleg. Þetta staðfestir Erna við mbl.is og segir að finna þurfi félagsmann til þess að fara í fordæmisgefandi prófmál gegn Landspítala, sem BHM er tilbúið að bera kostnað við.
„Við sættum okkur ekki við að félagsmenn, þar sem er sannarlega er um myglu að ræða, fái ekki að nýta þá daga sem veita á vegna atvinnusjúkdóms og samið hefur verið um í kjarasamningum,“ segir Erna.
Í frétt RÚV er haft eftir Kristni Tómassyni yfirlækni Vinnueftirlitsins að ekki eigi að nota lista Vinnueftirlitsins um atvinnusjúkdóma til að neita þeim um veikindarétt, það sé misnotkun á listanum.
Erna segir að skilaboðin um að viðurkenna ekki sjúkdóma vegna myglu sem atvinnusjúkdóma komi til stjórnenda stofnana frá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins, sem hefur með kjaramál ríkisins að gera.
Hún segir að langan tíma hafi tekið að fá veikindi vegna asbest-ryks viðurkennd sem atvinnusjúkdóm og reiknar með því að það sama verði uppi á teningnum með myglusveppinn.
„Ég vona að Vinnueftirlitið sé með þetta mál í gjörgæslu hjá sér. Það er óviðunandi að starfsmenn veikist við það eitt að koma í vinnuna. Þú getur ímyndað þér hvað þetta kostar samfélagið, það er þegar mannekla á Landspítalanum og fólk sem er að vinna annars staðar hefur ekki áhuga á að starfa í þessu umhverfi,“ segir Erna um mygluna í húsnæði BUGL við Laugardal.
Mygla í húsnæðinu hefur haft áhrif á starfsemina þar undanfarin ár og er Guðrún Hálfdánardóttir blaðamaður mbl.is ræddi við Guðrúni Bryndísi Guðmundsdóttur yfirlækni á BUGL í byrjun desember var aðeins um helmingur húsnæðis legudeildarinnar nothæfur, eða tíu pláss af sautján.