Hafna kröfu um frestun 500 tonna eldis

500 tonna seiðaeldi er fyrirhugað í Þorlákshöfn.
500 tonna seiðaeldi er fyrirhugað í Þorlákshöfn. mbl.is/Árni Sæberg

Úrsk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála hef­ur hafnað kröfu um frest­un réttaráhrifa á ákvörðun Mat­væla­stofn­un­ar frá 13. nóv­em­ber 2017, um út­gáfu rekstr­ar­leyf­is fyr­ir 500 tonna seiðaeldi Laxa fisk­eld­is ehf. í Þor­láks­höfn.

Máls­at­vik eru þau að Mat­væla­stofn­un hafði gefið út rekstr­ar­leyfi 13. nóv­em­ber til Laxa fisk­eld­is ehf., fyr­ir 500 tonna seiðaeldi með kyn­bætt­um norsk­um laxi af svo­nefnd­um SAGA-stofni.

Veiðifé­lag Árnes­inga, Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands og Nátt­úru­vernd­ar­fé­lagið Lax­inn lifi, kærðu þessa ákvörðun Mat­væla­stofn­un­ar. Gerðu kær­end­urn­ir þá kröfu að ákvörðunin yrði ógilt og jafn­framt var þess kraf­ist að réttaráhrif­um henn­ar yrði frestað eða þá fram­kvæmd­ir stöðvaðar.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Lands­sam­bandi fisk­eld­is­stöðva, en henni fylg­ir úr­sk­urður nefnd­ar­inn­ar. Seg­ir þar að kær­end­ur hafi talið hættu á lúsa­fári, sjúk­dóma­smiti og erfðameng­un, slyppi eld­is­fisk­ur úr stöðinni.

Frest­un réttaráhrifa hefði mikið tjón í för með sér

„Fyr­ir ligg­ur mats­skyldu­ákvörðun Skipu­lags­stofn­un­ar frá 2. ág­úst 2016 og hef­ur hún ekki verið kærð. Komst stofn­un­in að þeirri niður­stöðu að helstu nei­kvæðu áhrif eld­is­ins yrði los­un nær­ing­ar­efna út í sjó, en að ekki væru lík­ur á að nær­ing­ar­efni söfnuðust upp að neinu ráði vegna staðhátta,“ seg­ir í úr­sk­urðinum.

„Væri eldið ekki lík­legt til að hafa í för með sér um­tals­verð um­hverf­isáhrif og væri fram­kvæmd­in ekki háð mati á um­hverf­isáhrif­um. Verður með hliðsjón af fram­an­greindu að telja litl­ar lík­ur á að þau áhrif komi fram á um­hverfið á meðan á meðferð máls­ins stend­ur að kæru­heim­ild verði þýðing­ar­laus, en að sama skapi er ljóst að frest­un réttaráhrifa hinn­ar kærðu ákvörðunar myndi hafa í för með sér mikið tjón fyr­ir leyf­is­hafa.“

mbl.is