Dómstóll í Istanbúl sakfelldi í dag þrettán blaðamenn tyrkneska stjórnarandstöðublaðsins Cumhuriyet fyrir að hafa aðstoðað bönnuð hryðjuverkasamtök í landinu. Þrír blaðamenn voru sýknaðir.
Dómunum yfir blaðamönnunum þrettán var áfrýjað og eru þeir allir frjálsir ferða sinna. Dómari úrskurðaði einnig að Akin Atalay, útgefandi Cumhuriyer, yrði látinn laus. Hann hefur setið í fangelsi í rúmlega fimm hundruð daga.
Frelsi fjölmiðla í landinu hefur verið í deiglunni og haft er eftir fréttaritara AFP að litið sé á málsmeðferð blaðamannanna sem prófstein á fjölmiðlafrelsi í Tyrklandi.