Skipulagsstofnun hefur óskað eftir upplýsingum um samskipti sveitarstjórnar Árneshrepps við fyrirtækin sem hyggjast reisa Hvalárvirkjun. Greint var frá beiðninni í kvöldfréttum Rúv. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar, segir í samtali við mbl.is að samskiptin sem stofnunin óskar eftir að skoða varði afgreiðslu á breytingum á aðalskipulagi Árneshrepps.
„En þetta er í sjálfu sér ótengt þessum tilteknu samskiptum sem hafa birst í fréttum undanfarna daga,“ segir Ásdís Hlökk og vísar í samskipti Evu Sigurbjörnsdóttur, oddvita hreppsins, við Vesturverk og HS Orku, sem hyggjast reisa Hvalárvirkjun á. Gögnin fékk Pétur Húni Björnsson, stjórnarmaður í Rjúkanda, samtaka um verndun umhverfis, náttúru og menningarminja í Árneshreppi, eftir að hafa farið fram á að fá afrit af samskiptum Árneshrepps við Vesturverk og HS Orku á grundvelli upplýsingalaga.
Í gögnunum kemur fram að oddviti Árneshrepps leitaði meðal annars til Vesturverks og HS Orku til þess að fá aðstoð við að gera umsagnir sem Skipulagsstofnun óskaði eftir frá hreppnum, jafnframt því að veita hagsmunaaðila skýrslu af fundi hreppsnefndar ásamt fundargerð.
„Tilefni þessa bréfs eru athugasemdir sem bárust við kynningu skipulagstillögunnar og við töldum að lægi ekki fyrir nægileg svör eða skýringar varðandi og síðan athugasemdir sem hafa verið beint sérstaklega til okkar,“ segir Ásdís Hlökk.
Athugasemdir sem stofnuninni hafa borist varða ákveðin formsatriði í afgreiðslu, spurningar um hæfi sveitarstjórnarmanna við afgreiðslu málsins og samskipti við framkvæmdaraðila varðandi þátttöku framkvæmdaraðila í tilteknum framkvæmdum í sveitarfélaginu. Athugasemdirnar koma meðal annars frá aðilum í sveitarstjórn, Landvernd og náttúruverndarsamtökunum Rjúkanda, að sögn Ásdísar Hlakkar.
Hún segir að ekki sé hægt að segja til um á þessu stigi málsins hvort gripið verði til einhverra aðgerða, svo sem endurskoðun á aðalskipulagi, ef í ljós kemur að samskipti sveitarstjórnar og fyrirtækjanna eru ekki talin eðlileg.
„Ef að það eru einhver atriði þar sem stofnunin telur að sé nauðsynlegt að bæta úr svo að hægt sé að staðfesta viðkomandi skipulag beinum við því til sveitarfélagsins að bæta úr þeim annmörkum. En nú er of snemmt að segja til um það í þessu máli vegna þess að við eigum ennþá eftir að fá þessi svör frá sveitarfélaginu,“ segir Ásdís Hlökk.