Benchmark Holdings til Chile

Breska líf­tæknifyr­ir­tækið Bench­mark Hold­ings ætl­ar í hluta­fjárút­boð til þess að fjár­magna sam­eig­in­legt verk­efni með lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu AquaChile á sviði rækt­un­ar hrogna og kyn­bóta í lax­fiski. 

Stofn­Fisk­ur hf. er hluti af Bench­mark Genetics, alþjóðlegu rann­sókna- og ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tæki á sviði fisk­eld­is, land­búnaðar og dýra­heil­brigðis.

í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu kem­ur fram að það komi sér vel í sam­starf­inu í Chile að geta nýtt sér aðstöðu fyr­ir­tæk­is­ins hér á landi.

Bench­mark seg­ir að þetta muni styrkja stöðu þeirra á markaði í Chile, sem er ann­ar stærsti fram­leiðandi á laxi í heim­in­um en hingað til hef­ur fyr­ir­tækið ekki verið með starf­semi þar.

Stofn­fisk­ur hf. er stærsti fram­leiðandi á Íslandi á laxa­hrogn­um og er fyr­ir­tækið auk þess stórt á sviði í kyn­bót­a í fisk­eldi. Bench­mark Genetics Ltd. var stofnað árið 2000 og er í eigu Bench­mark Hold­ing Plc. sem er skráð á UK AIM-verðbréfa­markaðinn í Bretlandi. 

Bench­mark starfar í 27 lönd­um og eru starfs­menn þess tæp­lega eitt þúsund tals­ins.

Frétt 

mbl.is