Breytt staðsetning til bóta fyrir umhverfið

Sjókvíar í Patreksfirði. Mynd úr safni.
Sjókvíar í Patreksfirði. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Mat­væla­stofn­un hef­ur gefið út breytt rekstr­ar­leyfi fyr­ir sjókvía­eld­is­stöðvar Fjarðalax í Pat­reks­firði. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni.

Seg­ir þar að rekstr­ar­leyfi Fjarðalax hf., til fram­leiðslu á laxi í sjókví­um í nýj­um stöðvum í Pat­reks­firði og Tálknafirði, hafi verið gef­in út í des­em­ber síðastliðnum.

„Í upp­hafi árs kom í ljós að færa þyrfti til eld­is­svæði Fjarðalax að Eyri í Pat­reks­firði vegna straum­stefnu fjarðar­ins. Breyt­ing á staðsetn­ingu eld­is­svæðanna er til bóta fyr­ir um­hverfið og eld­is­fisk­inn og var það mat Skipu­lags­stofn­un­ar að breyt­ing­in væri ekki háð mati á um­hverf­isáhrif­um,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Um­hverf­is­stofn­un vinni því nú að út­gáfu nýs starfs­leyf­is en ljóst sé að starfs­leyfi verði ekki gefið út fyrr en í fyrsta lagi í júlí.

„Vegna áætl­ana Fjarðalax að setja út seiði í byrj­un júní sótti fyr­ir­tækið um und­anþágu frá starfs­leyfi til um­hverf­is- og auðlindaráðuneyt­is­ins svo unnt væri að gefa út breytt rekstr­ar­leyfi af hálfu Mat­væla­stofn­un­ar með nýrri staðsetn­ingu sjókvía.“

Kröf­ur í starfs­leyfi hald­ist óbreytt­ar

Í um­sögn Um­hverf­is­stofn­un­ar vegna meðferðar um­hverf­is­ráðuneyt­is­ins komi fram að breyt­ing­in sé ekki lík­leg til að auka líf­rænt álag í firðinum held­ur væri hún til þess fall­in að draga úr nei­kvæðum um­hverfisaðstæðum.

„Kröf­ur í starfs­leyfi munu hald­ast óbreytt­ar og gerði Um­hverfi­stofn­un ekki at­huga­semd­ir við að und­anþága yrði veitt. Um­hverf­is­ráðuneytið veitti í fram­hald­inu und­anþág­una og gild­ir hún til 1. októ­ber 2018.

Mat­væla­stofn­un tel­ur að um óveru­lega breyt­ingu á út­gefnu leyfi frá des­em­ber 2017 sé að ræða, þar sem ein­göngu er um að ræða breyt­ing­ar á hnit­um á einu eld­i­svæði og dag­setn­ingu áður út­gef­ins leyf­is. Breyt­ing­in telst á all­an hátt já­kvæð með til­liti til um­hverf­is og vel­ferðar fisks­ins og hef­ur stofn­un­in því breytt rekstr­ar­leyfi varðandi staðsetn­ingu kví­ar að Eyri í Pat­reks­firði.“

mbl.is