Þörf á úrbótum í Tálknafirði

Þörf er á tilteknum úrbótum að sögn stofnunarinnar
Þörf er á tilteknum úrbótum að sögn stofnunarinnar mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Kafar­ar voru kallaðir til aðstoðar eft­ir að nótar­poki eldisk­ví­ar Fjarðalax í Tálknafirði endaði í skrúfu vinnu­báts á þriðju­dag. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Mat­væla­stofn­un. Losuðu kafar­arn­ir nótar­pok­ann af skrúfu vinnu­báts­ins en áður höfðu starfs­menn sett ör­ygg­is­net inn í nótar­pok­ann þar sem hann var út­dreg­inn og flækt­ur.

Í fram­hald­inu var all­ur fisk­ur flutt­ur úr kvínni og yfir í nær­liggj­andi kví, sam­kvæmt því sem fram kem­ur í til­kynn­ing­unni. Ekki var tal­in hætta á slysaslepp­ingu og staðfest hef­ur verið að starfs­menn brugðust við aðstæðum á viðeig­andi hátt sam­kvæmt verk­ferli fyr­ir­tæk­is­ins.

Um leið sé þó ljós þörf á til­tekn­um úr­bót­um að sögn stofn­un­ar­inn­ar, og verða gerðar kröf­ur um úr­bæt­ur á búnaði og verklagi.

mbl.is