Önundarfjörður gæti borið 2.500 tonn

Fram kemur að fjörðurinn sé fremur grunnur og meðaldýpi hans …
Fram kemur að fjörðurinn sé fremur grunnur og meðaldýpi hans um 18 metrar. mbl.is/Sigurður Bogi

Hægt er að leyfa allt að 2.500 tonna fisk­eldi í Önund­arf­irði. Þetta er niðurstaða burðarþols­mats Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, en í mat­inu er gert ráð fyr­ir að heild­ar­líf­massi í firðinum verði aldrei meiri en 2.500 tonn og sömu­leiðis að vökt­un á áhrif­um eld­is­ins fari fram.

„Slík vökt­un er for­senda fyr­ir hugs­an­legu end­ur­mati á burðarþoli fjarðar­ins, til hækk­un­ar eða lækk­un­ar, sem byggt væri á raun­gögn­um,“ seg­ir í mat­inu, auk þess sem bent er á að æski­legra sé að eld­is­massi sé utar í firðinum en inn­ar.

Vind­ur hef­ur mik­il áhrif

Fram kem­ur að fjörður­inn sé frem­ur grunn­ur og meðal­dýpi hans um 18 metr­ar, en mest sé það 32 metr­ar í mynni fjarðar­ins. Niður­stöður straum­mæl­inga sýni til­tölu­lega veik­an meðal­straum vegna mik­ils breyti­leika í straum­stefnu á straum­sjám, og frek­ar óreglu­lega hringrás í firðinum.

„Ljóst er að vind­ur hef­ur mik­il áhrif á strauma fjarðar­ins vegna þess hve grunn­ur hann er og fylg­ir út­flæði sunn­an­vert oft sterk­um norðaust­an vindátt­um,“ seg­ir í mat­inu. Ætla megi að end­ur­nýj­un­ar­tími fjarðar­ins sé um tíu til ell­efu sól­ar­hring­ar.

Lítið pláss geti magnað vanda

Bent er sér­stak­lega á að marg­ir líf­fræðileg­ir, vist­fræðileg­ir og hagræn­ir þætt­ir geti legið til grund­vall­ar burðarþoli varðandi fisk­eldið, t.d. skólp­los­un, smit­hætta, lyfja­notk­un, erfðablönd­un við villta stofna og veiðihags­mun­ir.

„Þessu til viðbót­ar hef­ur komið í ljós að laxal­ús og fiskilús geta valdið meiri skaða en áður var talið. Fyr­ir fjörð sem er jafn lít­ill og Önund­ar­fjörður hef­ur skort­ur á plássi einnig áhrif á burðarþolið og get­ur magnað mögu­leg­an lúsa­vanda. Ljóst er að hér eru fyr­ir hendi aðstæður sem setja veru­legt mark á burðarþol fjarðar­ins.“

Af þess­um sök­um gefi svo­kölluð varúðarnálg­un ástæðu til að mæla með því að há­marks líf­massi verði ekki meiri en 2.500 tonn í Önund­arf­irði.

mbl.is