Ákvörðun Hafrannsóknastofnunar um að endurskoða ekki áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi er byggðum í landinu gríðarlegt áfall að sögn Einars K. Guðfinnssonar, formanns Landssambands fiskeldisstöðva.
Ákvörðunin kom honum í opna skjöldu, en hann taldi allar efnislegar forsendur standa til þess að endurskoðun yrði gerð, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
„Við höfðum unnið í góðri trú með Hafrannsóknastofnun í hér um bil eitt ár þar sem settar voru fram hugmyndir sem gætu leitt til þess að endurskoða áhættumatið þannig að það gæti leitt til aukinna framleiðsluheimilda,“ segir Einar sem er ósammála röksemdafærslu að baki ákvörðuninni.