Lax slapp úr sjókví við Tálknafjörð

Sjókvíaeldi á Vestfjörðum.
Sjókvíaeldi á Vestfjörðum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Slysaslepp­ing á eld­islaxi varð úr sjókví Fjarðalax í Tálknafirði í byrj­un þessa mánaðar. Or­sök tjóns og um­fang slysaslepp­ing­ar liggja ekki fyr­ir en 5 fisk­ar úr sjókvínni hafa veiðst í net eft­ir at­vikið fram til þessa. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Mat­væla­stofn­un.

Stofn­un­inni barst til­kynn­ing frá Fjarðalaxi um fisk utan kví­ar og gat á nótar­poka sjókví­ar fyr­ir­tæk­is­ins að Laug­ar­dal í Tálknafirði að morgni 6. júlí. Við eft­ir­lit Mat­væla­stofn­un­ar 9. júlí  var farið yfir at­b­urðarás at­viks­ins, búnað og viðbrögð fyr­ir­tæk­is­ins.

Fram kem­ur að ljóst sé að slysaslepp­ing hafi átt sér stað en um­fang slepp­ing­ar er óljóst. Meðalþyngd fiska í um­ræddri kví er 3,5 kg og voru um 150.000 fisk­ar í kvínni. Fiski­stofa stjórn­ar veiðum vegna slysaslepp­inga og hafa 5 fisk­ar veiðst í net eft­ir slysaslepp­ing­una.

Þá seg­ir í til­kynn­ingu Mat­væla­stofn­un­ar að viðbrögð fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið skráðum verk­ferl­um þess. Gert var við göt eft­ir að þau upp­götvuðust og viðbragðsáætl­un vegna slysaslepp­ing­ar virkjuð. 

Upp­fært kl 12:19: Í upp­haf­legri frétt kom fram að önn­ur slysaslepp­ing hefði átt sér stað í Tálknafirði hjá Arn­ar­laxi, en hið rétt er að Fjarðarlax er í eigu Arn­ar­lax og er leyfið í Tálknafirði skráð á Fjarðarlax. Því er aðeins um eitt at­vik að ræða, en ekki tvö eins og lesa mátti af upp­haf­legri frétt.

mbl.is