Sex félagar úr japanska sértrúarsöfnuðinum Æðsti sannleikur voru teknir af lífi í nótt en fyrr í mánuðinum voru leiðtogi þeirra og sex aðrir hengdir fyrir taugagasárás í neðanjarðarlestarkerfi Tókýó-borgar árið 1995. Alls voru 13 dæmdir til dauða fyrir árásina.
Dómsmálaráðherra Japans, Joko Kamikawa, staðfesti við fjölmiðla að þeir síðustu úr söfnuðinum hefðu verið teknir af lífi fyrr í dag. Hann segist hafa fyrirskipað aftökurnar að vandlega íhuguðu máli.
Eiginkona manns sem lést í árásinni, Shizue Takahashi, fagnaði því að búið sé að taka alla þá 13 sem dæmdir voru til dauða fyrir árásina af lífi. Nú sé málinu vonandi lokið og réttlætinu náð. „En skaðinn er skeður fyrir fórnarlömbin sem þjást áfram þrátt fyrir aftökurnar. Mér finnst það mjög erfitt,“ segir hún.
Æðsti sannleikur var til að byrja með mjög svo sakleysislegur trúarhópur sem eins og svo margir hópar stundaði jóga og seldi heilsudrykki. Leiðtogi hópsins, Shoko Asahara, hélt því fram að hann hefði dulrænt vald sem gerði honum kleift að breyta sér í allra kvikinda líki.
Hugmyndafræðin var tekin úr ýmsum trúarbrögðum, þar á meðal búddatrú, hindúisma og kristni. Asahara kenndi að heimurinn myndi farast og úr honum rísa nýr og betri heimur. Þessi hugmynd var síðan notuð til að réttlæta ofbeldi og glæpi sem framdir voru af hópnum, svo sem tilraun til morðs á lögfræðingi sem studdi fyrrverandi liðsmenn hópsins, taugagasárás í Nagano-sýslu árið 1994 í tengslum við ósætti við yfirvöld þar um land, og síðan sams konar árás í Tókýó árið 1995 þegar ljóst var að yfirvöld voru að íhuga aðgerðir gegn söfnuðinum.
Tólf manns létust í árásinni og meira en 5.000 veiktust af völdum gaseitrunar. Það sem fólki fannst illskiljanlegt var að margir af forystumönnum hópsins, að leiðtoganum undanskildum, voru ungir hámenntaðir raunvísindamenn, segir í frétt Morgunblaðsins um málið á sínum tíma.