Stjórn SUS mótfallin myndavélaeftirliti

Í frumvarpinu eru m.a. tillögur sem fela í sér að …
Í frumvarpinu eru m.a. tillögur sem fela í sér að komið verði upp myndbandsvélum um borð í skipum með það að markmiði að upplýsa um lögbrot. mbl.is/Alfons Finnsson

Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) andmælir harðlega tillögum sjávarútvegsráðherra um víðtækt og umfangsmikið myndavélaeftirlit Fiskistofu með sjávarútvegi.

Í ályktun frá stjórn sambandsins segir að eftirlit af þessu tagi bjóði upp á misnotkun og brjóti gróflega gegn frelsi sjávarútvegsfyrirtækja og eigi sér fá ef einhver fordæmi á Íslandi.

Tillögurnar fela í sér að komið verði upp myndbandsvélum um borð í skipum með það að markmiði að upplýsa um lögbrot. Þá hyggur Fiskistofa á að beita fjarstýrðum drónum í sama tilgangi. „Stjórn SUS telur tillögur ráðuneytisins fela í sér hættulegt skref í átt að eftirlitssamfélagi,“ segir í ályktun SUS.

Stjórn SUS er jafnframt þeirrar skoðunar að ekki eigi að ganga út frá því að einstaklingar og fyrirtæki séu lögbrjótar, heldur eiga þeir að njóta vafans gagnvart eftirlitsstarfsemi stjórnvalda. „Vissulega væri hægt að upplýsa um fleiri lögbrot með myndbandsupptökuvélum, hvort sem þær séu í skipum, eldhúsum veitingastaða eða skrifstofum fjármálafyrirtækja, en slíkur ávinningur er skammvinnur og lítill í samhengi við það frelsi sem samfélagið tapar vegna slíks fyrirkomulags,“ segir í ályktuninni.

Stjórn SUS hvetur sjávarútvegsráðherra til þess að endurskoða frumvarpsdrögin með frelsishugsjónina í huga. „Ráðherrar og þingmenn Sjálfstæðisflokksins eiga ekki að leiða í lög fyrirmæli sem skerða frelsi borgaranna. Við eigum að grisja þann þétta skóg sem forræðishyggin löggjöf er orðin,“ segir í ályktun stjórnar SUS.

mbl.is