Áhættumat ekki á vetur setjandi

Laxaseiðum dælt úr brunnbát í sjókví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði
Laxaseiðum dælt úr brunnbát í sjókví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði

Áhættumat Haf­rann­sókna­stofn­un­ar vegna slysaslepp­inga á eld­islaxi sæt­ir harðri gagn­rýni í skýrslu Laxa fisk­eld­is ehf. um aukn­ingu á heim­ild­um til lax­eld­is í sjókví­um í Reyðarf­irði. Fram kem­ur það álit sér­fræðinga fyr­ir­tæk­is­ins að áhættumatið sé slík­um ann­mörk­um háð að ekki verði á því byggj­andi. Matið hafi ekki verið fest í lög og vís­inda­legt vægi þess lítið.

Lax­ar fisk­eldi eru með lax­eldi í sjókví­um í Reyðarf­irði og hafa þar heim­ild til fram­leiðslu á 6.000 tonn­um á ári. Fyr­ir­tækið hef­ur miðað áform sín um upp­bygg­ingu og fjár­fest­ing­ar við niður­stöður burðarþols­mats Haf­rann­sókna­stofn­un­ar sem sýna 20 þúsund tonna há­marks­líf­massa í Reyðarf­irði. Í skýrslu um áhættumat sem Haf­rann­sókna­stofn­un kynnti á síðasta ári er hins veg­ar lagt til að sam­an­lögð fram­leiðsla í Reyðarf­irði yrði að há­marki 9 þúsund tonn.

Lax­ar fisk­eldi sækja um 10 þúsund tonna aukn­ingu í Reyðarf­irði þannig að heild­ar­fram­leiðslan verði allt að 16 þúsund tonn, eða 7 þúsund tonn­um yfir þrösk­uldi áhættumats­ins, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: