HG sækir að nýju um eldi í Djúpinu

Brunnbáturinn Papey við sjókví í Álftafirði þegar starfsmenn HG voru …
Brunnbáturinn Papey við sjókví í Álftafirði þegar starfsmenn HG voru að ljúka við að slátra regnbogasilungi upp úr kvíunum.

Hraðfrysti­húsið-Gunn­vör (HG) hef­ur sótt að nýju um starfs- og rekstr­ar­leyfi fyr­ir mikla aukn­ingu heim­ilda til fisk­eld­is í sjókví­um í Ísa­fjarðar­djúpi, aðallega á regn­bogasil­ungi.

Rúmt ár er síðan úr­sk­urðar­nefnd felldi úr gildi starfs­leyfi Um­hverf­is­stofn­un­ar vegna þessa eld­is í kjöl­far kæru veiðirétt­ar­hafa. Áfram legg­ur HG þó áherslu á að eiga kost á að nýta aðstöðuna til þess að ala lax, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

HG hóf fisk­eldi í Ísa­fjarðar­djúpi á ár­inu 2002, fyrst eldi á þorski og síðan einnig regn­bogasil­ungi. Eldið er rekið und­ir merkj­um dótt­ur­fé­lags­ins Háa­fells. Smám sam­an fjaraði und­an þor­skeld­inu vegna þess að ekki hef­ur náðst að fram­leiða nógu góð seiði og regn­bogasil­ung­ur stóðst ekki sam­keppni við lax­inn sem eld­is­fisk­ur. Því var ákveðið fyr­ir sjö árum að sækja um að breyta leyf­un­um að hluta til í lax. Hef­ur það ferli gengið illa og er um­hverf­is­skýrsla í biðstöðu hjá Skipu­lags­stofn­un vegna óvissu með áhættumat Haf­rann­sókna­stofn­un­ar sem ekki hef­ur laga­stoð en ger­ir ekki ráð fyr­ir að lax­eldi verði heim­ilað í Ísa­fjarðar­djúpi. Fór svo að síðustu fisk­un­um var slátrað upp úr kví­um fyr­ir­tæk­is­ins í vet­ur og er HG ekki með neitt sjókvía­eldi eins og er.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: