Þrír eldislaxar úr veiðiám

Við laxveiðar í Langadalsá í Ísafjarðardjúpi.
Við laxveiðar í Langadalsá í Ísafjarðardjúpi. mbl.is/Golli

Staðfest hef­ur verið með grein­ingu á veg­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að þrír af fjór­um löx­um sem veidd­ust á Vest­fjörðum ný­lega og voru úr eldi.

Lax­arn­ir voru úr Laug­ar­dalsá í Ísa­fjarðar­djúpi, Selá í Skjald­fann­ar­dal og Staðará í Stein­gríms­firði. Fjórða sýnið sem rann­sakað var reynd­ist vera nátt­úru­leg­ur lax úr Hvanna­dalsá í Ísa­fjarðar­djúpi, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Á heimasíðu Haf­rann­sókna­stofn­un­ar kem­ur fram að þessi fjöldi eld­islaxa í ám á þess­um svæðum sé í sam­ræmi við það sem áhættumat um erfðablönd­un ger­ir ráð fyr­ir miðað við nú­ver­andi um­fang sjókvía­eld­is hér við land. „Hlut­fall eld­islaxa í þess­um ám er, miðað við þenn­an fjölda laxa, vel und­ir þeim mörk­um að erfðasam­setn­ingu villtu stofn­anna sé hætta búin,“ seg­ir á heimasíðunni.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: