Samningurinn gerður í góðri trú

Allir liðsmenn íslenska kokkalandsliðsins sögðu sig úr liðinu í gær.
Allir liðsmenn íslenska kokkalandsliðsins sögðu sig úr liðinu í gær. Ljósmynd/ Hörður Ásbjörnsson

For­seti Klúbbs mat­reiðslu­meist­ara seg­ir þá stöðu sem upp er kom­in mjög viðkvæma og svig­rúm þurfi til að vinna úr henni. Fregn­ir bár­ust af því í gær að klúbbur­inn hefði gert styrkt­ar­samn­ing við fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Arn­ar­lax hf. Í kjöl­farið sögðu all­ir liðsmenn kokka­landsliðsins sig úr liðinu.

„Þetta eru vá­leg tíðindi og það er enn verið að vinna úr stöðunni. Klúbb­ur mat­reiðslu­meist­ara er ópóli­tísk­ur fé­lags­skap­ur sem á og rek­ur kokka­landsliðið. Við tök­um ekki af­stöðu með eða á móti sjókvía­eldi, en klúbbur­inn og landsliðið eru nú orðin skot­spónn tveggja ólíkra hags­munaaðila, sem er miður,“ seg­ir Björn Bragi Braga­son.

Afstaða ekki tek­in með samn­ingn­um

Hann seg­ir Klúbb mat­reiðslu­meist­ara ekki taka af­stöðu með eða á móti sjókvía­eldi frek­ar en öðrum at­vinnu­grein­um eða póli­tísk­um ákvörðunum sem tekn­ar eru í land­inu. Aðspurður hvort afstaða hafi ekki verið tek­in með und­ir­rit­un styrkt­ar­samn­ings seg­ir Björn Bragi svo ekki vera.

„Arn­ar­lax er fyr­ir­tæki sem hef­ur ís­lenska kenni­tölu og starfs­leyfi á Íslandi. Við það var gerður styrkt­ar­samn­ing­ur, eins og við ger­um við önn­ur fyr­ir­tæki í at­vinnu­líf­inu, í góðri trú. Staðan sem er kom­in upp er mjög viðkvæm og við þurf­um smá­svig­rúm til þess að vinna úr henni.“

Kjart­an Ólafs­son, stjórn­ar­formaður Arn­ar­lax, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu þegar mbl.is leitaði til hans eft­ir viðbrögðum við fregn­um af af­sögn kokka­landsliðsmanna vegna samn­ings­ins.

mbl.is