Eldhúsdagsumræður að hefjast

Eldhúsdagsumræður hefjast á stefnuræðu forsætisráðherra klukkan 19:30 og að henni …
Eldhúsdagsumræður hefjast á stefnuræðu forsætisráðherra klukkan 19:30 og að henni lokinni fara fram umræður um ræðuna. mbl.is/Ómar Óskarsson

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra flyt­ur stefnuræðu sína á Alþingi klukk­an 19.30 í kvöld. Að henni lok­inni fara fram umræður um ræðuna, svo­nefnd­ar eld­hús­dagsum­ræður.

Hægt er að fylgj­ast með umræðunni hér fyr­ir neðan:

Umræðurn­ar skipt­ast í þrjár um­ferðir og mun ljúka laust fyr­ir klukk­an 22. Röð flokk­anna verður eft­ir­far­andi í öll­um um­ferðum: Vinstri­hreyf­ing­in – grænt fram­boð, Sam­fylk­ing­in, Miðflokk­ur­inn, Sjálf­stæðis­flokk­ur, Pírat­ar, Fram­sókn­ar­flokk­ur, Flokk­ur fólks­ins og Viðreisn.

For­menn allra flokka tala til máls í fyrstu um­ferð, en Pírat­ar eru þar und­an­tekn­ing. Hall­dóra Mo­gensen mun flytja fyrstu ræðu Pírata en Björn Leví Gunn­ars­son var ný­lega slembival­inn sem formaður flokks­ins  og tek­ur hann við af Hall­dóru.

Ræðumenn í kvöld verða eft­ir­far­andi:

Vinstri­hreyf­ing­in – grænt fram­boð: Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra, Svandís Svavars­dótt­ir heil­brigðisráðherra og Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son, um­hverf­is- og auðlindaráðherra.

Sam­fylk­ing­in: Logi Ein­ars­son, Al­bertína Friðbjörg Elías­dótt­ir og Ágúst Ólaf­ur Ágústs­son. 

Miðflokk­ur­inn: Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, Bergþór Ólason og Sig­urður Páll Jóns­son.

Sjálf­stæðis­flokk­inn: Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra, Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­málaráðherra og Har­ald­ur Bene­dikts­son.

Pírat­ar: Hall­dóra Mo­gensen, Smári McCart­hy og Jón Þór Ólafs­son.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn: Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra,  Lilja Al­freðsdótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra, og Ásmund­ur Ein­ar Daðason, fé­lags- og jafn­rétt­is­málaráðherra.

Flokk­ur fólks­ins: Inga Sæ­land, Ólaf­ur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son.

Viðreisn: Þor­gerður K. Gunn­ars­dótt­ir, Þor­steinn Víg­lunds­son og Hanna Katrín Friðriks­son.

Greint verður frá umræðunum á mbl.is, en einnig verður hægt að horfa á þær í beinni út­send­ingu á vef Alþing­is og á RÚV. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina