Stjórn HB Granda samþykkti í gær að kaupa útgerðarfélagið Ögurvík af Brimi hf. sem er í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra HB Granda. Á sama fundi var ákveðið að einfalda skipurit félagsins og í stað sex manna framkvæmdastjórnar sitja nú aðeins þrír starfsmenn fyrirtækisins í henni.
Það eru forstjórinn, fjármálastjóri og framkvæmdastjóri. Síðastnefnda staðan er ný í skipuriti félagsins. Samhliða þeim breytingum var ákveðið að ráða Ægi Pál Friðbertsson í það starf en hann hefur frá árinu 2013 verið framkvæmdastjóri Brims hf. Stjórnarformaður HB Granda er Magnús Gústafsson. Hann sat áður í stjórn Brims hf.
Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að síðastliðið vor hafi þáverandi stjórnendur HB Granda metið möguleg kaup á Ögurvík á þann veg að ekki væri hægt að réttlæta þau nema það kæmi verulega niður á arðsemi félagsins. Var talið að forsvaranlegt verð fyrir fyrirtækið í því ljósi lægi í kringum 8 milljarða en ekki 12,3.