200 þúsund laxar drápust

Matvælastofnun sagði 53 þúsund laxa hafa drepist í febrúarmánuði.
Matvælastofnun sagði 53 þúsund laxa hafa drepist í febrúarmánuði. mbl.is/Helgi Bjarnason

„2018 er ár sem við vilj­um segja skilið við,“ seg­ir Kristian Matth­ías­son, fram­kvæmda­stjóri Arn­ar­lax, vel meðvitaður um að ár­inu er enn ekki lokið.

Á þess­um orðum hefst um­fjöll­un norska lax­eld­is­frétta­vefs­ins iLaks.no um erfiðleika Arn­ar­lax und­an­far­in miss­eri.

At­hygli vek­ur að greint er frá því í grein­inni að 200 þúsund lax­ar hafi drep­ist í eldi fyr­ir­tæk­is­ins í fe­brú­ar, en í svari Mat­væla­stofn­un­ar við fyr­ir­spurn í lok þess mánaðar sagði að 53 þúsund lax­ar hefðu drep­ist, og hafa hærri töl­ur ekki birst fyrr en nú.

Til sam­an­b­urðar má geta að á ár­inu 2016 voru veidd­ir á stöng í öll­um ís­lensku laxveiðián­um 53.600 lax­ar.

Ástæðan fyr­ir óhapp­inu var óveður sem olli því að gat kom á eina kví eld­is­ins. Tæma þurfti kvína og færa fisk­inn annað, en aðstæður voru slæm­ar til aðgerða.

„Þetta var stór­slys sem kom fyr­ir okk­ur þarna,“ seg­ir Kristian.

„Hefði verið hægt að forðast slysið?“ spyr blaðamaður iLaks.

„Allt er hægt að forðast. Við þurf­um að koma okk­ur í stöðu þar sem við njót­um meiri heppni en óheppni,“ svar­ar Kristian.

Markmiðið er að útrýma nýrnasjúkdómi sem hrjáir laxinn.
Mark­miðið er að út­rýma nýrna­sjúk­dómi sem hrjá­ir lax­inn. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Þrálát­ur nýrna­sjúk­dóm­ur

Lax­inn sem flutt­ur var þoldi illa flutn­ing­inn þar sem hann var þegar sýkt­ur af nýrna­sjúk­dómn­um BKD, al­var­leg­um og þrá­lát­um sjúk­dómi sem bakt­erí­ur valda. Sjúk­dóm­ur­inn er í um­fjöll­un­inni sagður hafa hrjáð eldi Arn­ar­lax frá upp­hafi.

„Fisk­ur­inn var veik­b­urða vegna BKD. Maður get­ur auðvitað velt því fyr­ir sér hvort fisk­ur­inn hefði þolað flutn­ing­inn bet­ur hefði hann verið í toppástandi. Hver veit,“ seg­ir Kristian og bæt­ir við að und­an­far­in tvö ár hafi verið á áætl­un að út­rýma sjúk­dómn­um í kví­um fyr­ir­tæk­is­ins.

„Við erum kom­in eitt­hvað áleiðis en erum ekki al­veg kom­in að enda­mörk­um. Mark­miðið er að fram­leiða BKD-laus­an fisk.“

Kristian viður­kenn­ir að vanda­mál á borð við þetta hafi slæm áhrif á orðspor fyr­ir­tæk­is­ins.

„Við meg­um ekki við fleiri svona at­b­urðum. Ef við forðumst svona at­vik, þá höf­um við ekki nei­kvæða ímynd. Við verðum að kenna okk­ur sjálf­um um, það erum við sem höf­um gefið dag­blöðunum eitt­hvað til að skrifa um.“

Kristian seg­ir marga blaðamenn vinna einatt að því að búa til nei­kvæða hluti um fyr­ir­tækið, og að því sé ekki leyft að koma sín­um sjón­ar­miðum að.

„Þetta er mikið af lyg­um og hef­ur ekk­ert með raun­veru­leik­ann að gera.“

Íslenska kokkalandsliðið að störfum.
Íslenska kokka­landsliðið að störf­um. Ljós­mynd/​Hörður Ásbjörns­son

Skell­ur fyr­ir al­manna­tengsl­in

Máli er þá vikið að kokka­landsliðinu, sem sleit kost­un­ar­samn­ingi sín­um við Arn­ar­lax aðeins skömmu eft­ir að hann var und­ir­ritaður í kjöl­far þess að fjöldi kokka úr landsliðinu mót­mælti samn­ingn­um.

Kristian seg­ir að slit samn­ings­ins, sem studd voru meðal ann­ars þeim rök­um að fyr­ir­tækið hefði vanefnt skyld­ur sín­ar, eigi ekki við rök að styðjast. Rifjar hann svo upp und­ir­rit­un samn­ings­ins.

„Við tök­um mynd af okk­ur sam­an með kokka­landsliðinu. All­ir eru ró­leg­ir og ánægðir. Næsta dag tek­ur landsliðið sig til og seg­ir að við séum um­hverf­is­sóðar og að við vilj­um bara eyðileggja ís­lenska nátt­úru,“ seg­ir Kristian.

„Því­lík synd að þess­ir ungu og hæfi­leika­ríku kokk­ar fari inn í póli­tísk­an leik um það hvort við eig­um að hafa lax­eldi á Íslandi eða ekki. Það er ógn­vekj­andi að þeir taki þessa póli­tísku af­stöðu, og það verður erfitt fyr­ir þá að tryggja sér fjár­stuðning í framtíðinni.“

Hann seg­ir málið hafa verið skell fyr­ir fyr­ir­tækið hvað varðar al­manna­tengsl og að búið sé að ráða al­manna­tengslaráðgjafa.

Tekið skref aft­ur á bak

Kristian bend­ir á að mik­il andstaða sé við lax­eldi á Íslandi.

„Sér­stak­lega af hálfu ým­issa hags­muna­sam­taka, sem drif­in eru áfram af laxveiðimönn­um. Umræðan er ekki jafn djúp og við sjá­um í Nor­egi, og það er fjöld­inn all­ur af mýt­um sem leyft er að lifa áfram. Þetta er erfitt um­hverfi til að starfa í.“

Árang­ur­inn á þessu ári lít­ur ekki vel út vegna slyss­ins í fe­brú­ar að sögn Kristians, en seg­ir að það hafi verið viðbúið í kjöl­far þess. Hann seg­ir 2018 vera meðalár.

„Á síðasta ári náðum við mark­miði okk­ar um að fram­leiða tíu þúsund tonn af fiski. Við höf­um ekki náð að byggja á því. Við neydd­umst til að taka skref aft­ur á bak, á sama tíma og við eig­um að vera að taka skref fram á við.“

Útlitið er þó ekki alslæmt.

„Sautjánda kyn­slóðin lof­ar góðu og við byrj­um slátrun í nóv­em­ber. Það hef­ur verið góð fram­leiðsla og við hlökk­um til að skila betri töl­um.“

Ekki náðist í for­svars­menn Arn­ar­lax við vinnslu frétt­ar mbl.is.

mbl.is