Eldislax hefði náð að hrygna í haust

Fjórir eldislaxar hafa veiðst í íslenskum ám í sumar. Mynd …
Fjórir eldislaxar hafa veiðst í íslenskum ám í sumar. Mynd úr safni.

Eld­islax sem veidd­ist í Eyja­fjarðará í byrj­un mánaðar­ins var að því kom­inn að hrygna og hefði lík­lega náð því í haust. Þetta kem­ur fram í máli Guðna Bergs­son­ar, sviðsstjóra og sér­fræðings ferskvatns­fiska hjá Haf­rann­sókna­stofn­un, í Frétta­blaðinu í dag.

Fjór­ir eld­islax­ar hafa veiðst í ís­lensk­um ám í sum­ar, svo vitað sé, en Guðni seg­ir að nokkr­ir fisk­ar til viðbót­ar séu til rann­sókn­ar hjá Hafró sem bera ein­kenni þess að geta hafa verið í eldi. Eld­islax­inn sem veidd­ur var í Vatns­dalsá 31. ág­úst var hrygna og við krufn­ingu kom í ljós að hún var með með mjög óþroskaða hrognsekki.

Í Frétta­blaðinu í dag er jafn­framt haft eft­ir Ein­ari K. Guðfinns­syni, fram­kvæmda­stjóra Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva, að óþarfi sé að hafa áhyggj­ur af eld­is­fiski. Seg­ir hann ljóst að at­vikið hafi ekki áhrif á líf­ríki hér við land.

mbl.is