Karlmaður hefur verið ákærður af embætti héraðssaksóknara fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni með því að hafa beitt hana ofbeldi og ólögmætri nauðung á heimili þeirra. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Í ákæru málsins kemur fram að maðurinn hafi í krafti yfirburðastöðu sinnar gagnvart stúlkunni, vegna trausts og trúnaðar hennar til hans sem stjúpföður, beitt hana ofbeldi og ólögmætri nauðung. Maðurinn er meðal annars ákærður fyrir að hafa, fyrir önnur kynferðismök en samræði, strokið læri og kynfæri stúlkunnar utanklæða í bifreið ákærða og haldið áfram þrátt fyrir að stúlkan hafi ýtt hendi hans frá. Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa áreitt hana kynferðislega með því að hafa látið hana komið við og káfa á berum kynfærum hans þegar stúlkan var í baði.
Er maðurinn ákærður fyrir brot á 1. gr. 194. gr. almennra hegningarlaga sem tekur á nauðgun og 1. og 2. mgr. 202 gr. sömu laga sem fjalla um kynferðisbrot gegn börnum.
Móðir stúlkunnar fer auk þess fram á að manninum verði gert að greiða stúlkunni fimm milljónir króna í bætur vegna brotanna, með vöxtum.