Leyfi til laxeldis felld úr gildi

Frá laxeldi í Patreksfirði. Mynd úr safni.
Frá laxeldi í Patreksfirði. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Úrsk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála hef­ur í tveim­ur úr­sk­urðum fellt úr gildi ákvörðun Mat­væla­stofn­un­ar um veita Fjarðarlaxi ehf. og Arctic Sea Farm rekstr­ar­leyfi fyr­ir 17.500 tonna árs­fram­leiðslu á laxi í sjókví­um í Pat­reks­firði og Tálknafirði.

Niðurstaða nefnd­ar­inn­ar bygg­ir á að um­hverf­is­mats­skýrsla fyr­ir­tækj­anna og álit Skipu­lags­stofn­un­ar á skýrsl­unni geti ekki verið lög­mæt­ur grund­völl­ur fyr­ir ákvörðun um veit­ingu leyfa til fram­kvæmda.

Taldi nefnd­in að Mat­væla­stofn­un hefði borið að tryggja að málið væri nægi­lega upp­lýst, m.a. með því að gæta að því að lög­bundið álit Skipu­lags­stofn­un­ar hafi verið nægi­lega traust­ur grund­völl­ur fyr­ir leyf­is­veit­ingu.

Nefnd­in taldi að svo hafi ekki verið þar sem tefla hefði þurft fram fleiri en ein­um val­kosti við mat á um­hverf­isáhrif­um, enda sé nauðsyn­legt að fá fram sam­an­b­urð um­hverf­isáhrifa fleiri kosta sem lög­bund­in krafa er gerð um, allt í þeim til­gangi að leyf­is­veit­andi geti tekið upp­lýsta af­stöðu að rann­sökuðu máli til þess að meta hvort eða með hvaða hætti hægt sé að leyfa fram­kvæmd þannig að skil­yrði laga séu upp­fyllt.

Þar sem ekki hafi verið sýnt fram á í mati á um­hverf­isáhrif­um að eng­inn ann­ar mögu­leg­ur fram­kvæmda­kost­ur hafi getað komið til greina verði að telja það veru­leg­an ágalla á mat­inu að eng­um öðrum kosti hafi verið lýst, að öðru leyti en því að vísað væri til þess að núll­kost­ur hefði eng­in áhrif í för með sér.

mbl.is