Beðið eftir aðgerðum stjórnvalda

Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar Alþingis.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar Alþingis. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fundað verður um þá ákvörðun úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála að fella úr gildi tvö rekstr­ar­leyfi sem Mat­væla­stofn­un hafi veitt Arn­ar­laxi og Artic Fish vegna fisk­eld­is í Pat­reks­firði og Tálknafirði í at­vinnu­vega­nefnd Alþing­is þegar skoðun á mál­inu hef­ur verið lokið í Stjórn­ar­ráðinu og hjá hlutaðeig­andi aðilum.

Þetta seg­ir Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir, formaður at­vinnu­vega­nefnd­ar Alþing­is, í sam­tali við mbl.is en þing­menn í nefnd­inni óskuðu eft­ir því í morg­un að fundað yrði í nefnd­inni um stöðuna sem kom­in er upp. Lilja seg­ist telja rétt að bíða eft­ir niður­stöðu úr þeirri skoðun og boða til fund­ar þegar viðbrögð stjórn­valda liggja fyr­ir.

Erfitt verði að fá full­trúa fram­kvæmda­valds­ins á fund nefnd­ar­inn­ar á meðan unnið sé af þeirra hálfu að úr­lausn í mál­inu. Lilja legg­ur áherslu á að mikl­ar áhyggj­ur séu vegna máls­ins og það litið al­var­leg­um aug­um. Mik­il­vægt sé að brugðist verði mjög hratt við og að hægt verði að fresta réttaráhrif­um niður­fell­ing­ar leyf­anna.

mbl.is