Líf fólks og framtíðaráform í uppnámi

Frá Tálknafirði.
Frá Tálknafirði. Ljósmynd/Bæjarins besta

Sveit­ar­fé­lög­in Vest­ur­byggð og Tálkna­fjarðar­hrepp­ur krefjast þess að gripið verði til taf­ar­lausra aðgerða, í kjöl­far þess að úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála felldi úr gildi rekstr­ar­leyfi sem Mat­væla­stofn­un hafði veitt Fjarðarlaxi og Arctic Sea til fisk­eld­is í Pat­reks­firði og Tálknafirði.

„Áhrif úr­sk­urðar­ins eru gríðarleg á at­vinnu­líf og sam­fé­lög á sunn­an­verðum Vest­fjörðum og veru­leg­ir hags­mun­ir í húfi,“ seg­ir í sam­eig­in­legri yf­ir­lýs­ingu sveit­ar­fé­lag­anna beggja.

Seg­ir í henni að frá upp­hafi hafi sveit­ar­fé­lög­in gert þá ský­lausu kröfu að fag­lega sé staðið að veit­ingu leyfa ásamt því að rann­sókn­um og virku eft­ir­liti sé sinnt.

„Lögð hef­ur verið áhersla á að byggja upp ábyrga at­vinnu­grein í sátt við menn og nátt­úru og eru það því mik­il von­brigði kom­in sé upp sú staða að líf fólks og framtíðaráform séu sett í upp­nám. Ákall sveit­ar­fé­lag­anna er að þetta mál verði sett í al­gjör­an for­gang hjá rík­is­stjórn og Alþingi þannig að hægt verði að lág­marka þann skaða sem nú þegar er orðinn.“

mbl.is