Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir aukafundi í atvinnuveganefnd Alþingis við fyrsta tækifæri vegna þeirrar niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að fella úr gildi tvö rekstrarleyfi sem Matvælastofnun hafði gefið út til laxeldis í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði.
Málið snýst um rekstrarleyfi Fjarðarlaxi ehf. og Arctic Sea Farm fyrir 17.500 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði. Fram kemur í fundarbeiðninni að óskað sé eftir því að kallaðir verði fyrir fundinn fulltrúar frá Umhverfisráðuneytinu og Sjávarútvegsráðuneytinu og fulltrúar frá Matvælastofnun.
„Þetta er grafalvarleg staða sem komin er upp. Vestfirðingum er haldið í herkví, nóg er samt. Hér lítur helst út að kerfin og stofnanir tali ekki saman. Kerfin rekast á og atvinnuuppbygging situr hjá á meðan,“ segir Halla Signý í fundarbeiðninni. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið undir fundarbeiðni Höllu.
Telur nefndin að Matvælastofnun hefði meðal annars átt að gæta að því að lögbundið álit Skipulagsstofnunar væri nægilega traustur grundvöllur fyrir leyfisveitingu en nefndin telur svo ekki vera. Þannig hafi til að mynda ekki verið sýnt fram á í mati á umhverfisáhrifum að enginn annar mögulegur framkvæmdakostur hafi getað komið til greina.