Fulltrúi Fjarðalax (dótturfélags Arnarlax) og Arctic Sea Farm (dótturfélags Arctic Fish) hafa óskað eftir því að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála fresti réttaráhrifum nýfallinna úrskurða sinna þar sem rekstrarleyfi Matvælastofnunar um laxeldi í Patreksfirði og Tálknafirði voru felld úr gildi. Þetta upplýsir skrifstofa nefndarinnar.
Úrskurðarnefndin mun fjalla um málið á fundum síðar í vikunni og eftir atvikum má vera að afstaða nefndarinnar til beiðninnar liggi fyrir undir lok vikunnar.
Heimildir til að fresta réttaráhrifum úrskurða er ekki að finna í lögum um úrskurðarnefndina. Skrifstofan bendir á að ólögfestar reglur stjórnsýsluréttar geti átt við en til þess hafi ekki verið tekin afstaða.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar um starfsleyfi til sama laxeldis var kærð á sama tíma og rekstrarleyfin. Stefnt er að því að úrskurða í þeim málum á morgun, fimmtudag.