Ákvörðun um starfsleyfi felld úr gildi

Fiskeldi við Hlaðseyri í Patreksfirði.
Fiskeldi við Hlaðseyri í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Úrsk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála hef­ur fellt úr gildi ákv­arðanir Um­hverf­is­stofn­un­ar um út­gáfu starfs­leyfa fyr­ir rekstr­araðilana Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. í Pat­reks- og Tálknafirði. Áður hafði úr­sk­urðar­nefnd fellt úr gildi ákv­arðanir Mat­væla­stofn­un­ar um út­gáfu rekstr­ar­leyfa til sömu aðila á grund­velli sömu rök­semda.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Um­hverf­is­stofn­un.

Úrsk­urðar­nefnd tel­ur að álit Skipu­lags­stofn­un­ar um mat á um­hverf­isáhrif­um fram­kvæmd­anna geti ekki verið grund­völl­ur leyf­is­veit­inga vegna skorts á um­fjöll­un um val­kosti.

„Ekki ligg­ur fyr­ir á þess­ari stundu hvernig brugðist verður við niður­stöðum úr­sk­urðanna en farið verður yfir mögu­leg­ar lausn­ir með um­hverf­is- og auðlindaráðuneyt­inu. Seiði hafa ein­ung­is verið sett út á einu eld­is­svæði og um­fang því lítið enn sem komið er,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Fram kem­ur að Um­hverf­is­stofn­un hafi í um­sögn sinni til úr­sk­urðar­nefnd­ar, vegna beiðni rekstr­araðila um frest­un réttaráhrifa úr­sk­urðanna, mælt með því að réttaráhrif­um verði frestað á meðan mál­in verði til meðferðar hjá dóm­stól­um. Bygg­ir sú afstaða á því að stofn­un­in tel­ur að út­gáfa starfs­leyfa hafi verið í sam­ræmi við lög og regl­ur.

Tek­ur ekki und­ir rök­semd­ir nefnd­ar­inn­ar

„Tek­ur stofn­un­in ekki und­ir rök­semd­ir úr­sk­urðar­nefnd­ar­inn­ar um að álit Skipu­lags­stofn­un­ar um mat á um­hverf­isáhrif­um hafi ekki verið lög­mæt­ur grund­völl­ur fyr­ir ákvörðun um veit­ingu leyfa til fram­kvæmda. Einnig skal bent á að úr­sk­urðar­nefnd­in leitaði ekki um­sagn­ar Skipu­lags­stofn­un­ar í rann­sókn sinni á mál­inu áður en hún kvað upp úr­sk­urð sinn sem lýsti ann­mörk­um á um­hverf­is­mats­ferl­inu. Stofn­un­in tel­ur því að úr­sk­urðar­nefnd­in hafi ekki haft mik­il­væg sjón­ar­mið til grund­vall­ar áður en úr­sk­urðir féllu, einkum um raun­hæfa val­kosti,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Þar seg­ir einnig að úr­sk­urðar­nefnd telji að skyld­ur leyf­is­veit­anda nái ekki ein­vörðungu til þess að taka af­stöðu til þeirra efn­is­legu niðurstaðna sem í áliti Skipu­lags­stofn­un­ar fel­ast held­ur einnig til þess að kanna hvort aðrir ann­mark­ar geti verið til staðar, s.s. að skort hafi á um­fjöll­un um val­kosti.

„Um­hverf­is­stofn­un tel­ur að í því fel­ist krafa um form­legt og efn­is­legt end­ur­mat leyf­is­veit­anda á áliti Skipu­lags­stofn­un­ar. Úrsk­urður­inn sýn­ir þörf á að skýrt verði nán­ar í lög­um hvert sé hlut­verk leyf­is­veit­anda hvað varðar ábyrgð á áliti um mat á um­hverf­isáhrif­um. Mik­il­vægt er að árétta að leyf­in eru ógilt á grund­velli þess að um­hverf­is­mati hafi verið áfátt en ekki að skil­yrði í starfs­leyfi um meng­un­ar­varn­ir hafi verið ófull­nægj­andi.“

mbl.is