Samstarf um hönnun 13 nýrra báta og skipa

Teikning af fyrstu hugmynd að Nökkva 1500, leitar- og björgunarskipi …
Teikning af fyrstu hugmynd að Nökkva 1500, leitar- og björgunarskipi sem byggir á hönnun Rafnar ehf. Teikning/Rafnar

Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) og Rafnar ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf í tengslum við hönnun og síðar endurnýjun á öllum björgunarbáta- og skipaflota landsins. Um er að ræða 13 nýja báta og skip og er gert ráð fyrir að verkefnið kosti um 2 milljarða íslenskra króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Verða hannaðir annars vegar 12-15 metra langir léttbyggðir bátar og hins vegar 15 metra björgunarskip til lengra úthalds. Hefur Tækniþróunarsjóður styrkt Rafnar vegna þessa um 70 milljónir króna á næstu tveimur árum.

Rafnar afhentu fyrsta sérhannaða björgunarbátinn árið 2015 og hefur fyrirtækið síðan verið í samvinnu um frekari þróun slíkra báta.

Meðal annars er reynt að draga úr þeim höggum sem verða á báta þegar þeir fara yfir hafflötinn á miklum hraða. Með skrokkhönnun báta frá Rafnar er reynt að draga úr þeim höggum og segir í tilkynningunni að verkfræðideild Háskóla Íslands hafi metið að hönnunin dragi úr höggunum 80-90%.

Slysavarnafélagið Landsbjörg og Rafnar munu eftir því sem við á leita eftir samstarfi við og afla tilboða frá skipasmíðastöðvum sem mesta reynslu hafa á þessu sviði.

Haft er eftir Jóni Svanberg Hjartarsyni, framkvæmdastjóra SL að endurnýjun björgunarbáta- og skipaflota landsins sé bráðnauðsynlegt hagsmunamál og mikilvægt öryggismál. Undanfarið hafi rýni- og greiningarvinna átt sér stað um næstu skref og að miklar vonir séu bundnar við hina sérhönnuðu skrokkhönnun Rafnar.

mbl.is