Gera athugasemdir við frétt RÚV

Fiskeldi við Hlaðseyri í Patreksfirði.
Fiskeldi við Hlaðseyri í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Bæj­ar­stjóri Vest­ur­byggðar, Re­bekka Hilm­ars­dótt­ir, og odd­viti Tálkna­fjarðar­hrepps, Bjarn­veig Guðbrands­dótt­ir, gera al­var­leg­ar at­huga­semd­ir við frétta­flutn­ing Rík­is­út­varps­ins um eldi í Pat­reks­firði og Tálknafirði þar sem haft er eft­ir Ótt­ari Yngvars­syni, lög­manni nátt­úru­vernd­ar­sam­taka og veiðirétt­hafa, að aðeins 5 til 10 manns séu í vinnu við eldi í Pat­reks­firði og 25 manns í vinnu við eldi í Arnar­f­irði.

Þetta kem­ur fram í yf­ir­lýs­ingu.

„Þess­ari full­yrðingu er harðlega mót­mælt enda er hún ekki byggð á staðreynd­um né gögn­um um fjölda starfa. Hið rétta er að bein störf fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna á svæðinu eru 170 tals­ins. Þess er kraf­ist að Rík­is­út­varpið leiðrétti frétt­ina og hvetja til þess að miðill­inn vandi bet­ur frétta­flutn­ing sinn,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ing­unni.

Óttar Yngva­son, lögmaður nátt­úru­vernd­ar­sam­taka og veiðirétt­ar­hafa, sagði í frétt RÚV að sjókvía­eldi í Pat­reks­firði og Tálknafirði sé úr sög­unni eft­ir niður­stöðu úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála. Hann sagði það jafn­framt staðleysu að niðurstaðan þýði at­vinnu­leysi.

„Við þetta eldi í Pat­reks­firði þá eru kannski komn­ir til vinnu þar fimm til tíu manns, ef það eru svo marg­ir.  Staðhæf­ing­ar um að þetta séu 150 manns í vinnu við til dæm­is Arn­ar­lax eldið í Arnar­f­irði og þetta byrjaða í Pat­reks­firði, það er hreint rugl. Ég myndi telja að það væru til dæm­is í Arnar­f­irðinum kannski 25 manns í vinnu þar og í Pat­reks­firðinum kannski fimm til tíu mann,“ sagði hann við RÚV.

mbl.is