Óvissan á Vestfjörðum óviðunandi

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það óvissu­ástand sem skap­ast hef­ur á Vest­fjörðum í kjöl­far úr­sk­urðar úr­sk­urðar­nefnd­ar um um­hverf­is- og auðlinda­mál er með öllu óviðun­andi. Hér verður að bregðast hratt við og svara því með hvaða hætti þeim sem í hlut eiga verði tryggður rétt­ur til að láta reyna á stöðu sína gagn­vart stjórn­völd­um.“

Þetta seg­ir Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra á Face­book-síðu sinni og bæt­ir við að í þeim efn­um séu ekki ein­göngu hags­mun­ir ein­staka rekstr­araðila und­ir held­ur alls sam­fé­lags­ins fyr­ir vest­an.

„Sömu­leiðis þarf að tryggja að sann­gjarn­ar regl­ur gildi um rétt til að bæta úr ágöll­um í leyf­is­um­sókn­ar­ferli, ef slíku er til að dreifa, í þessu máli og til fram­búðar. Skýr­ar regl­ur, meðal­hóf og sann­gjarn málsmeðferðar­tími eru nokkr­ar af grunn­regl­um í því stjórn­kerfi sem við vilj­um reka.“

Bjarni seg­ir ekki að ástæðulausu að kveðið sé um mik­il­vægi þess að hraða málsmeðferð þar sem það sé hægt sam­kvæmt gild­andi lög­um, til dæm­is með því að styrkja úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála, í stjórn­arsátt­mála rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina