Sjá fram á gjaldþrot og uppsagnir

Kvíar Fjarðalax í Patreksfirði.
Kvíar Fjarðalax í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Það verður með ein­hverj­um ráðum að greiða úr þessu upp­lausn­ar­ástandi, bæði því sem snýr að sam­fé­lag­inu fyr­ir vest­an og eins skiln­ingi stofn­ana og al­menn­ings á lög­um um mat á um­hverf­isáhrif­um,“ sagði Kristján Þór Júlí­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráðherra um stöðuna sem upp er kom­in varðandi lax­eldi á Vest­fjörðum.

Úrsk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála vísaði í gær frá kröfu lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna Fjarðalax ehf. og Arctic Sea Farm hf. um að fresta réttaráhrif­um fyrri úr­sk­urða nefnd­ar­inn­ar um að fella úr gildi starfs­leyfi og rekstr­ar­leyfi fyr­ir­tækj­anna. Komst úr­sk­urðar­nefnd­in að þeirri niður­stöðu að hún hefði ekki heim­ild til að fresta réttaráhrif­um eig­in úr­sk­urða.

Í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag bend­ir Kristján Þór á að úr­sk­urðar­nefnd­in hefði beint atriðum að um­hverf­is­ráðherra og sjáv­ar­út­vegs­ráðherra. Það þyrfti að meta yfir helg­ina. Hann benti á að það væri rétt­ur al­menn­ings að fara með ágrein­ings­mál fyr­ir dóm­stóla.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: