Inngrip vegna laxeldis til skoðunar

Ríkisstjórnin hefur til skoðunar hvernig bregðast eigi við nýlegum úrskurði …
Ríkisstjórnin hefur til skoðunar hvernig bregðast eigi við nýlegum úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. mbl.is/Helgi Bjarnason

Tveir ráðherr­ar rík­is­stjórn­ar­inn­ar hafa til skoðunar hvaða leiðar séu fær­ar til þess að veita lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um „sann­gjarn­an frest til að bæta úr þeim ann­mörk­um sem koma fram í kæru­ferli og fag­lega sé staðið að öll­um mál­um.“ Þetta kem­ur fram í Face­book-færslu Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra en þar vís­ar hún til Guðmund­ar Inga Guðbrands­son­ar um­hverf­is­ráðherra og Kristjáns Þórs Júlí­us­son­ar sjáv­ar­út­vegs­ráðherra.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra. Ljós­mynd/​Aðsend

Í færsl­unni seg­ir Katrín að bæj­ar­stjóri Vest­ur­byggðar og odd­viti Tálkna­fjarðar­hrepps hefðu mætt á fund formanna stjórn­ar­flokk­anna í gær ásamt sveit­ar­stjórn­ar­mönn­um í sveit­ar­fé­lög­un­um til þess að ræða stöðuna sem upp er kom­in hjá lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um í sveit­ar­fé­lög­un­um eft­ir að úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála felldi úr gildi starfs­leyfi fyr­ir­tækj­anna. Leyf­in voru felld út vegna tækni­legra ann­marka á út­gáfu leyf­anna.

Að sögn Katrín­ar lögðu sveit­ar­stjórn­ar­menn áherslu á að fyr­ir­tæk­in hefðu hafið starf­semi sína í góðri trú um að hafa aflað með rétt­um hætti allra til­skil­inna leyfa. „Þau lögðu áherslu á að starf­semi fyr­ir­tækj­anna væri þess eðlis að það væri til þess fallið að valda þeim tjóni til allr­ar framtíðar að stöðva starf­sem­ina án fyr­ir­vara, og ekki í anda meðal­hófs. Þau lýstu sömu­leiðis áhyggj­um sín­um af áhrif­um þess á sam­fé­lög­in fyr­ir vest­an,“ skrif­ar Katrín.

„Við upp­lýst­um þau um að sjáv­ar­út­vegs­ráðherra og um­hverf­is­ráðherra hafa verið með til skoðunar hvaða leiðir eru fær­ar til þess að gæta meðal­hófs í þessu máli og öðrum, þannig að fyr­ir­tæki geti al­mennt fengið sann­gjarn­an frest til að bæta úr þeim ann­mörk­um sem koma fram í kæru­ferli og fag­lega sé staðið að öll­um mál­um. Það er von mín að far­sæl lausn finn­ist á þessu máli sem allra fyrst.“

Af­drifa­rík­ar af­leiðing­ar fyr­ir sam­fé­lagið verði ekki brugðist strax við

Í til­kynn­ingu frá Re­bekku Hilm­ars­dótt­ur, bæj­ar­stjóra Vest­ur­byggðar, og Bjarn­veigu Guðbrands­dótt­ur, odd­vita Tálkna­fjarðar­hrepps, er greint frá sjón­ar­miðunum sem komu fram á fund­in­um með for­mönn­um stjórn­ar­flokk­anna þriggja.

Kem­ur þar fram að þar hefði verið greint frá þeim al­var­leg­um áhrif­um sem úr­sk­urðirn­ir hafa á íbúa sveit­ar­fé­lag­anna og það óvissu­ástand sem nú er uppi. Í sveit­ar­fé­lög­un­um tveim­ur búa 1.268 manns, og hafa fyr­ir­tæk­in tvö 165 manns á launa­skrá, auk fjölda verk­taka og þjón­ustu­fyr­ir­tækja sem þess­ar ákv­arðanir snerta beint. Verði ekki brugðist strax við er ljóst að þetta mun hafa af­drifa­rík­ar af­leiðing­ar fyr­ir sam­fé­lagið í heild sinni.

„Á fund­in­um var greint frá því að stjórn­völd væru að vinna að til­tekn­um lausn­um til að bregðast við því óvissu­ástandi sem íbú­ar Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarðar­hrepps standa nú frammi fyr­ir. For­svars­menn sveit­ar­fé­lag­anna treysta því að stjórn­völd veiti fyr­ir­tækj­un­um skjól þannig að þau geti haldið sinni starf­semi áfram á meðan leyst er úr þeirri stjórn­sýslu­legu flækju sem upp er kom­in.“

mbl.is