Mikið reiðarslag fyrir smátt samfélag

Þungt hljóð er í Bílddælingum vegna úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og …
Þungt hljóð er í Bílddælingum vegna úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um að fella úr gildi rekstrarleyfi fiskeldisfyrirtækjanna. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

„Það er mjög vont hljóð í fólki. Maður heyr­ir mikið óör­yggi hjá öll­um og all­ir hafa af þessu mikl­ar áhyggj­ur,“ seg­ir Jón Garðar Jör­unds­son, fram­kvæmda­stjóri Haf­kalks og íbúi á Bíldu­dal. Hann seg­ir ákvörðun úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála um að fella úr gildi rekstr­ar­leyfi tveggja fisk­eld­is­fyr­ir­tækja á Vest­fjörðum vera mikið reiðarslag fyr­ir þetta smáa sam­fé­lag.

Jón Garðar Jörundsson og Sara Hreiðarsdóttir fluttu til Bíldudals fyrir …
Jón Garðar Jör­unds­son og Sara Hreiðars­dótt­ir fluttu til Bíldu­dals fyr­ir sex árum. Þau eru bæði fædd og upp­al­in í borg­inni. Ljós­mynd/​Aðsend

„Ég á ná­granna þar sem báðar fyr­ir­vinn­urn­ar starfa hjá Arn­ar­laxi, þau fengu frétt­irn­ar þegar þau voru stödd í ut­an­lands­ferð og vita núna ekki hvað bíður þeirra,“ seg­ir hann. „Maður hef­ur áhyggj­ur af því hvað verður ef þetta fer á versta veg. Áður en lax­eldið kom var ekk­ert við að vera. Hús­in voru því næst að vera verðlaus og þorp­in hér í kring að leggj­ast í eyði.“

Fædd og upp­al­in í Reykja­vík en fluttu vest­ur fyr­ir sex árum

Jón Garðar og eig­in­kona hans, Sara Hreiðars­dótt­ir, eru bæði fædd og upp­al­in á höfuðborg­ar­svæðinu en þau fluttu til Bíldu­dals fyr­ir sex árum frá Reykja­vík. „Þegar við flutt­um til Bíldu­dals fór­um við með þrjú börn, en við erum búin að bæta einu við. Það var nán­ast ekk­ert hér í bæn­um, 110 til 120 íbú­ar með fasta bú­setu, eng­in þjón­usta eða lík­ams­rækt. Skól­inn og leik­skól­inn lit­laus­ir með lítið af börn­um. En maður fann von því lax­eldið var að fara af stað,“ seg­ir Jón Garðar.

Íbúar vinna margir hjá Arnarlaxi. Aðrir reiða sig mjög á …
Íbúar vinna marg­ir hjá Arn­ar­laxi. Aðrir reiða sig mjög á at­vinnu­upp­bygg­in­una á svæðinu í af­leidd­um störf­um í skól­um eða þjón­ustu. Ljós­mynd/​Aðsend

„Í dag iðar bær­inn af lífi. Alla morgna er fólk á leið í vinnu og bær­inn er full­ur af fólki. Fólk kepp­ist um leigu­íbúðir, hér er verið að fjár­festa í eign­um og skóli og leik­skóli eru að fyll­ast,“ seg­ir Jón og lýs­ir því hversu mik­il og já­kvæð breyt­ing­in sé því orðin í bæn­um á þeim sex árum þegar það þótti frétt­næmt að fimm manna fjöl­skylda hefði flutt vest­ur, til dags­ins í dag, þegar börn geta í fyrsta skipti æft fim­leika á svæðinu því loks­ins sé nógu mikið af börn­um til þess að bjóða upp á íþrótt­ina.

Halda að sér hönd­um vegna óviss­unn­ar

Ný­lega ákváðu þau Jón Garðar og Sara að fjár­festa í húsi á Bíldu­dal og fengu þau af­hent fyr­ir tveim­ur vik­um. „Við höf­um eytt öllu okk­ar spari­fé í að kaupa húsið og erum að gera það upp að inn­an, en núna þorir maður varla að eyða pen­ing­um því maður veit ekk­ert hvað er í gangi,“ seg­ir Jón og bæt­ir við að því hafi ekki ein­ung­is lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in unnið sam­kvæmt starfs­leyf­um sín­um í góðri trú, held­ur hafi íbú­ar tekið ákv­arðanir út frá þeim leyf­um sem til staðar hafi verið og vænt­inga til at­vinnu og upp­bygg­ing­ar á svæðinu.

Sara ásamt þremur barna þeirra Jóns Garðars. Jón segir til …
Sara ásamt þrem­ur barna þeirra Jóns Garðars. Jón seg­ir til merk­is um grósku á svæðinu að ný­lega hafi börn­in getað sótt fim­leikaæf­ing­ar sem áður hafi ekki staðið til boða vegna fá­menn­is. Ljós­mynd/​Aðsend

„Heilu byggðarlög­in sitja eft­ir með ósvaraðar spurn­ing­ar og þetta set­ur öll plön í óvissu,“ seg­ir Jón. „Ef rekstr­ar­grund­velli fyr­ir­tækj­anna er kippt und­an þeim þá mun allt hérna deyja, ekki bara lax­eldið. Öll störf­in í skól­um, leik­skól­um og í ann­arri þjón­ustu, sem ekki voru hér áður, fylgja á eft­ir.“

mbl.is