Eðlilegt að löggjöfin sé lagfærð

Lilja Rafney telur eðlilegt að sjávarútvegsráðherra, sem ábyrgðarmaður í málaflokknum, …
Lilja Rafney telur eðlilegt að sjávarútvegsráðherra, sem ábyrgðarmaður í málaflokknum, hafi umrædda heimild. Sigurður Bogi Sævarsson

Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir, þingmaður VG og formaður at­vinnu­vega­nefnd­ar Alþing­is, tel­ur eðli­legt að lög­gjöf í kring­um fisk­eldi sé lag­færð miðað við þá ágalla sem hafa komið fram í ógild­ing­ar­máli starfs- og rekstr­ar­leyfa Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. Þetta sagði hún í sam­tali við mbl.is eft­ir fund með sjáv­ar­út­vegs­ráðherra og þing­mönn­um rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, þar sem kynnt var laga­frum­varp um breyt­ingu á lög­um um fisk­eldi.

Frum­varpið, sem verður lagt fyr­ir Alþingi sem allra fyrst, að sögn ráðherra, ger­ir ráð fyr­ir að í þeim til­vik­um sem rekstr­ar­leyfi er fellt úr gildi geti ráðherra að feng­inni um­sögn Mat­væla­stofn­un­ar gefið út rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða til allt að tíu mánaða.

Hefði mátt lag­færa fyrr

„Þetta er eitt­hvað sem eðli­legt er að ráðherra hafi mögu­leika á því hann er ábyrgðarmaður í þess­um mála­flokki,“ seg­ir Lilja Raf­ney.

„Þetta er eitt­hvað sem hefði kannski átt að vera búið að koma í ljós áður, og hefði þurft að laga al­veg burt­séð frá þessu til­tekna máli,“ seg­ir Lilja. „Þessi lög­gjöf miðast ekki við ein­hver ein­stök fyr­ir­tæki, en við þessa málsmeðferð alla hef­ur komið í ljós að þarna eru hlut­ir sem þarf að laga.“

Fund­ur á morg­un

At­vinnu­vega­nefnd mun funda klukk­an átta í fyrra­málið, m.a. um fisk­eld­is­mál­in, og verða gest­ir á fund­in­um full­trú­ar Skipu­lags­stofn­un­ar, Mat­væla­stofn­un­ar og Um­hverf­is­stofn­un­ar.

„Þetta verður rætt í sam­hengi við annað. Það var búið að óska eft­ir fundi um þessi [fisk­eld­is­mál] í heild sinni og að starfs­leyf­in hefðu með úr­sk­urði úr­sk­urðar­nefnd­ar­inn­ar verið felld úr gildi. Það er verið að upp­fylla þá ósk nefnd­ar­manna en svo er þetta mál komið upp núna, sem við þurf­um líka að fjalla um. Það er þó auðvitað ekki búið að mæla fyr­ir mál­inu á Alþingi en það fer von­andi í út­být­ingu sem fyrst,“ seg­ir Lilja. 

Aðspurð sagðist hún ekki geta spáð fyr­ir um meðferð máls­ins í þing­inu á morg­un en vonaðist, málsaðila vegna, að málið geti gengið vel fyr­ir sig.

mbl.is