Skip fyrirtækisins Laxa Fiskeldis ehf., M/V Sif, hefur verið kyrrsett í kjölfar hafnarríkisskoðunar á Eskifirði sem gerð var á föstudag. Við skoðunina voru gerðar athugasemdir við útrunnin skráningarskírteini frá færeyska skipaeftirlitinu, og hefur skipið verið kyrrsett vegna þess að skráningar- og skoðunarpappíra vantar.
Skipið var smíðað á síðasta ári í Færeyjum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Samgöngustofu, og er skráð heimahöfn þess í Fuglafirði. Segir í tilkynningunni að kyrrsetningunni verði aflétt af skipinu þegar skoðun leiðir í ljós að skipspappírar hafi verið leiðréttir.