Funda í Stjórnarráðinu vegna laxeldisfyrirtækja

Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu.
Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rík­is­stjórn­in fund­ar nú í Stjórn­ar­ráðinu, en gera má ráð fyr­ir að þar sé rætt um stöðu lax­eld­is­fyr­ir­tækja í Pat­reks­firði og Tálknafirði. Þetta herma heim­ild­ir mbl.is, en í frétt­um Bylgj­unn­ar á há­deg­inu kom fram að ráðherr­ar hefðu mætt til fund­ar um há­deg­is­bil.

Í síðustu viku felldi úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála úr gildi starfs­leyfi tveggja lax­eld­is­fyr­ir­tækja og úr­sk­urðaði nefnd­in að ekki væri heim­ild til að fresta réttaráhrif­um þess.

Ráðherr­ar rík­is­stjórn­ar­inn­ar hafa lýst yfir áhyggj­um sín­um af stöðu mála, en fjöldi starfa á Vest­fjörðum teng­ist lax­eld­inu. Þannig hef­ur Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra sagt óviss­una óviðun­andi og Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra og Kristján Þór Júlí­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráðherra sagt að til skoðunar sé hvaða leiðar séu fær­ar til þess að veita fyr­ir­tækj­un­um „sann­gjarn­an frest til að bæta úr þeim ann­mörk­um sem koma fram í kæru­ferli og fag­lega sé staðið að öll­um mál­um.“

mbl.is