Kynnti frumvarp um laxeldið

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ræðir við fréttamenn í …
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ræðir við fréttamenn í dag. mbl.is/​Hari

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, kynnti frum­varp á fundi rík­is­stjórn­ar­inn­ar í dag vegna þeirr­ar stöðu sem kom­in er upp vegna starf­semi tveggja lax­eld­is­fyr­ir­tækja á Vest­fjörðum. Þessu greindi ráðherr­ann blaðamönn­um frá eft­ir fund­inn en vildi hins veg­ar ekki út­lista hvað ná­kvæm­lega kæmi fram í frum­varp­inu.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráðinu um rík­is­stjórn­ar­fund­inn að Kristján hafi lagt fram frum­varp til breyt­inga á lög­um nr. 71/​2008, um fisk­eldi sem sneru að veit­ingu rekstr­ar­leyf­is til bráðabirgða. Kristján sagði að næsta skref í mál­inu væri að leggja frum­varpið fyr­ir þing­flokka rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, Sjálf­stæðis­flokks­ins, Vinstri hreyf­ing­ar­inn­ar - græns fram­boðs og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Eft­ir það gæti hann greint nán­ar frá fyr­ir­huguðum aðgerðum stjórn­valda. „Ég get ekki tjáð mig um málið fyrr en þing­flokk­arn­ir hafa tjáð sig um það.“

„Staðan er bara þannig að ég lagði frum­varp fyr­ir rík­is­stjórn­ina og það geng­ur síðan til þing­flokka stjórn­ar­flokk­anna,“ sagði ráðherr­ann aðspurður. Fram kem­ur á vef Alþing­is að gert sé ráð fyr­ir fundi í at­vinnu­vega­nefnd þings­ins í fyrra­málið þar sem rætt verði um stöðu fisk­eld­is og gest­ir mæti á fund­inn. Þing­menn höfðu óskað eft­ir slík­um fundi á dög­un­um en formaður nefnd­ar­inn­ar, Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir þingmaður VG, sagði ekki tíma­bært að halda fund fyrr en fyr­ir lægi til hvaða aðgerða stjórn­völd myndu grípa til.

Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son um­hverf­is­ráðherra sagði ljóst að um­rædd fyr­ir­tæki gætu sótt um und­anþágu frá starfs­leyf­un­um sem felld voru úr gildi af úr­sk­urðar­nefnd auðlinda- og um­hverf­is­mála. Sá hluti máls­ins sneri að hon­um en hafi ekki verið til umræðu á fund­in­um. Að öðru leyti heyrði málið und­ir sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra.

Spurður hvort fyr­ir­tæk­in, Fjarðalax hf. og Artic Sea Farm hf., hefðu sótt um slík­ar und­anþágur sagðist Guðmund­ur ekki vita til þess. Fund­ur yrði í dag þar sem Um­hverf­is­stofn­un og Skipu­lags­stofn­un ræddu við fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in um næstu skref. Það væri í raun stofn­an­anna að leiðbeina þeim um næstu skref í mál­inu.

Spurður hvort málið væri þá ekki á hans borði sagði Guðmund­ur að þessi hluti máls­ins heyrði und­ir hans ráðuneyti og ef sótt yrði um und­anþágu frá starfs­leyf­inu kæmi það inn á hans borð.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfissráðherra yfirgefur Stjórnarráðshúsið í dag.
Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son um­hverf­iss­ráðherra yf­ir­gef­ur Stjórn­ar­ráðshúsið í dag. mbl.is/​​Hari
mbl.is

Bloggað um frétt­ina