Ráðherra geti gefið út bráðabirgðaleyfi

Frumvarpinu er ætlað að lagfæra með almennum hætti annmarka á …
Frumvarpinu er ætlað að lagfæra með almennum hætti annmarka á lögum um fiskeldi til framtíðar. mbl.is/Helgi Bjarnason

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, mun á morg­un leggja fram á Alþingi frum­varp til laga um breyt­ing­ar á lög­um um fisk­eldi. Frum­varpið ger­ir ráð fyr­ir að í þeim til­vik­um sem rekstr­ar­leyfi er fellt úr gildi geti ráðherra að feng­inni um­sögn Mat­væla­stofn­un­ar, enda mæli rík­ar ástæður með, gefið út rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða til allt að tíu mánaða.

Í til­kynn­ingu frá at­vinnu- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­inu seg­ir að frum­varp­inu sé ætlað að lag­færa með al­menn­um hætti ann­marka á lög­um um fisk­eldi til framtíðar. Sá ann­marki birt­ist í því að sam­kvæmt gild­andi lög­um er eina úrræði Mat­væla­stofn­un­ar í þeim til­vik­um sem rekstr­ar­leyfi fisk­eld­is­stöðvar er fellt úr gildi að stöðva starf­semi henn­ar.

Frum­varpið er lagt fram eft­ir að úr­sk­urðar­nefnd um um­hverf­is- og auðlinda­mál ógilti bæði starfs- og rekstr­ar­leyfi Fjarðalax og Arn­ar­lax fyr­ir fisk­eldi í Pat­reks­firði og Tálknafirði.

Sam­kvæmt frum­varp­inu get­ur ráðherra sett rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða þau skil­yrði sem þörf er á svo til­gang­ur leyf­is­ins ná­ist, m.a. um sam­drátt þeirr­ar starf­semi sem þegar er fyr­ir hendi, um tíma­fresti vegna úr­bóta eða ef um meðferð máls fyr­ir dóm­stól­um er að ræða.

Frum­varpið hef­ur verið kynnt þing­flokk­um stjórn­ar­flokk­anna. 

mbl.is