Sætta sig ekki við „slík hryðjuverk“

Fiskeldi á Vestfjörðum er að verða burðarás atvinnulífs í fjórðungnum, …
Fiskeldi á Vestfjörðum er að verða burðarás atvinnulífs í fjórðungnum, að því er segir í yfirlýsingunni. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Van­hugsaðar stjórn­valdsaðgerðir með aft­ur­köll­un starfs- og rekstr­ar­leyfa fisk­eld­is­fyr­ir­tækja hafa valdið ótta, óör­yggi og reiði íbúa á Vest­fjörðum.“ Þetta kem­ur fram í yf­ir­lýs­ingu frá stjórn Verka­lýðsfé­lags Vest­f­irðinga, en hún seg­ist for­dæma aðgerðirn­ar og að hún muni „ekki sætta sig við slík hryðju­verk“.

Kall­ar stjórn­in eft­ir sam­fé­lags­ábyrgð þeirra sem standa að slík­um ákvörðunum, að því er seg­ir í yf­ir­lýs­ing­unni. Fisk­eldi á Vest­fjörðum sé að verða burðarás at­vinnu­lífs í fjórðungn­um og at­b­urðarás­in, ef ekk­ert verði að gert, muni hafa af­drifa­rík­ar af­leiðing­ar fyr­ir Vest­f­irði og sam­fé­lagið þar til fram­búðar.

Lík­legt að starfs­mönn­um verði sagt upp

„Að svipta fyr­ir­tæk­in starfs- og rekstr­ar­leyfi set­ur störf um 300 ein­stak­linga í bráða hættu með til­heyr­andi skaða fyr­ir byggð á Vest­fjörðum. Ef um­rædd rekstr­ar- og starfs­leyfi eru ekki fyr­ir hendi er rekst­ar­grund­völl­ur fyr­ir­tækj­anna brost­inn og lík­legt að öll­um starfs­mönn­um verði sagt upp,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ing­unni.

„Það er áfall fyr­ir íbúa og at­vinnu­líf á Vest­fjörðum að úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála hafi hafnað beiðni fisk­eld­is­fyr­ir­tækja á sunn­an­verðum Vest­fjörðum um frest­un réttaráhrifa og fellt úr gildi starfs- og rekstr­ar­leyfi fyr­ir­tækja sem eru lífæðar at­vinnu á sunn­an­verðum Vest­fjörðum.

Stjórn Verka­lýðsfé­lags Vest­f­irðinga krefst þess að Alþingi og rík­is­stjórn grípi inn í og tryggi að illa ígrundaðar stjón­valdsaðgerðir kippi ekki stoðunum und­an rekstri fisk­eld­is­fyr­ir­tækja á Vest­fjörðum.“

mbl.is