Stjórnvöld brjóti lög með frumvarpinu

Óttar Yngvason, lög­maður nátt­úru­vernd­ar­sam­taka og veiðirétt­hafa.
Óttar Yngvason, lög­maður nátt­úru­vernd­ar­sam­taka og veiðirétt­hafa. Skjáskot/RÚV

Óttar Yngva­son, lög­maður nátt­úru­vernd­ar­sam­taka og veiðirétt­hafa, seg­ir það ekki boðlegt að stjórn­völd reyni að fara fram hjá úr­sk­urði sjálf­stæðrar úr­sk­urðar­nefnd­ar með því að leggja fram frum­varp til laga um breyt­ing­ar á lög­um um fisk­eldi. Þetta kom fram í máli Ótt­ars í Kast­ljósi í kvöld.

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, hyggst leggja fram á Alþingi fyrr­nefnt frum­varp sem ger­ir ráð fyr­ir að í þeim til­vik­um sem rekstr­ar­leyfi er fellt úr gildi geti ráðherra að feng­inni um­sögn Mat­væla­stofn­un­ar gefið út rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða til allt að tíu mánaða.

Frum­varpið er lagt fram eft­ir að úr­sk­urðar­nefnd um um­hverf­is- og auðlinda­mál ógilti bæði starfs- og rekstr­ar­leyfi Fjarðalax og Arn­ar­lax fyr­ir fisk­eldi í Pat­reks­firði og Tálknafirði.

Óttar sagði í Kast­ljósi að það væri eig­in­lega óheyrt að fram­kvæmda­valdið og jafn­vel lög­gjaf­ar­valdið líka, grípi inn í ferli dóms­máls eft­ir úr­sk­urð nefnd­ar líkt og úr­sk­urðar­nefnd­ar um um­hverf­is- og auðlinda­mál. Óttar seg­ir að eng­inn vafi sé á að með frum­varp­inu séu stjórn­völd að brjóta lög.

mbl.is