Þingmenn og ráðherrar þurfi að axla ábyrgð

Benda greinarhöfundar á að forsenda velmegunar velferðarríkisins Íslands sé verðmætasköpun.
Benda greinarhöfundar á að forsenda velmegunar velferðarríkisins Íslands sé verðmætasköpun.

Við Íslend­ing­ar eig­um ómæld ónýtt tæki­færi í fisk­eldi, en erum á góðri leið með að hindra fram­gang­inn með deil­um og ótta. Þetta er full­yrt í aðsendri grein í Morg­un­blaðinu í dag, en und­ir hana rita þau Daní­el Jak­obs­son, bæj­ar­full­trúi á Ísaf­irði, Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi, Jens Garðar Helga­son, bæj­ar­full­trúi í Fjarðabyggð, og Vala Páls­dótt­ir, formaður Lands­sam­bands sjálf­stæðis­k­venna.

Blómstruðu á for­send­um of­veiði og óhag­kvæmni

„Við grein­ar­höf­und­ar eig­um það sam­merkt að þekkja sam­tíma­sögu sjáv­ar­byggða. Sum okk­ar fædd þar og upp­al­in og muna þá tíð þegar sjáv­ar­byggðir meðfram allri strand­lengj­unni blómstruðu. Það var því miður á for­send­um of­veiði og óhag­kvæmni. Mark­viss­ari sókn­ar­stýr­ing og hagræðing í grein­inni var nauðsyn­leg,“ seg­ir í grein­inni.

„Íslensk­ur sjáv­ar­út­veg­ur er í dag há­tækniiðnaður þar sem störf­in hafa færst úr því að skera fisk, setja í frysta og slá úr pönn­um yfir í störf ofar í virðis­auka­keðjunni svo í ný­sköp­un, vöruþróun og markaðsmál. Þetta er ánægju­leg þróun sem ger­ir okk­ur kleift að vera í fremstu röð og stand­ast alþjóðlega sam­keppni en því er ekki að neita að hefðbundn­um störf­um í sjáv­ar­byggðunum hef­ur fækkað. Þess­ar nauðsyn­legu breyt­ing­ar komu eðli­lega harðast niður á íbú­um sjáv­ar­byggða. Rétt­ur þeirra nú sem fyrr er að nýta tæki­fær­in í nærum­hverfi í sátt við nátt­úr­una, þjóðarbú­inu öllu til hags­bóta.“

Greinarhöfundar segjast vilja að fiskeldi hér á landi verði settar …
Grein­ar­höf­und­ar segj­ast vilja að fisk­eldi hér á landi verði sett­ar sann­gjarn­ar kröf­ur, en ekki þannig að þær nálg­ist að vera hreint bann. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Verðmæta­sköp­un for­senda vel­meg­un­ar

Benda grein­ar­höf­und­ar á að for­senda vel­meg­un­ar vel­ferðarrík­is­ins Íslands sé verðmæta­sköp­un.

„Til að viðhalda hér lífs­kjör­um sem eiga sér fáa líka í heim­in­um verðum við nýta þau tæki­færi sem landið, miðin og mannauður­inn gefa okk­ur hverju sinni. Kjörn­um full­trú­um og stofn­un­um rík­is­ins ber að tryggja að lagaum­hverfi og stjórn­sýsla séu með þeim hætti að hvati sé fyr­ir fyr­ir­tæki og ein­stak­linga að sækja fram og sjá ný tæki­færi til sókn­ar fyr­ir okk­ur öll. Ef Íslend­ing­ar ætla ekki að drag­ast aft­ur úr í lífs­kjör­um í sam­an­b­urði við hinar Norður­landaþjóðirn­ar þurf­um við að auka út­flutn­ing um 1.000 millj­arða næstu 20 árin. Það þýðir að á hverju ári verðum við að auka út­flutn­ing um 50 millj­arða eða um tæp­an millj­arð á viku. Þetta er verk­efnið sem blas­ir við okk­ur Íslend­ing­um.“

Vax­andi mik­il­vægi fyr­ir þjóðarbúið

Fisk­eldi geti þá upp­fyllt hluta af þess­um 1.000 millj­örðum.

„Ef vel tekst til gætu út­flutn­ings­tekj­ur af því orðið um 100 millj­arðar á ári inn­an ára­tug­ar. Það gef­ur því auga­leið að mikið er í húfi fyr­ir þjóðina alla. Þótt fisk­eldið hafi hvað aug­ljós­ust áhrif í hinum dreifðu byggðum þá skipt­ir það okk­ur öll máli. Íslensk fisk­eld­is­fyr­ir­tæki afla þjóðarbú­inu veru­legs gjald­eyr­is enda yfir 90% afurðanna seld á er­lend­um mörkuðum. Útflutn­ings­verðmæti eru í dag á ann­an tug millj­arða. Ekk­ert sam­fé­lag hef­ur rétt til að varpa slíku frá sér á for­send­um deilna, til­finn­inga­hlaðinn­ar umræðu og for­dóma.“

Já­kvæð byggðaáhrif

Grein­ar­höf­und­ar segja fisk­eldi hafa orðið mörg­um byggðum kær­komið tæki­færi.

„Með vexti þess hafa rót­grón­ar sjáv­ar­byggðir á ný fengið tæki­færi, langt um­fram það sem jafn­vel bjart­sýn­ustu menn þorðu að vona. Áhrifa fisk­eld­is gæt­ir t.d. í öll­um bæj­um og þorp­um Vest­fjarða nú þegar og Vest­f­irðing­ar flytja í dag út meiri verðmæti í laxi en þorski. Þetta er því at­vinnu­grein sem skipt­ir máli og með nýj­um tæki­fær­um koma nýir íbú­ar. Hjól at­vinnu­lífs­ins eru far­in að snú­ast og íbú­arn­ir full­ir trú­ar á framtíðina. Það er verk­efni stjórn­mál­anna að upp­fylla þess­ar vænt­ing­ar.“

Segj­ast þau vilja að fisk­eldi hér á landi verði sett­ar sann­gjarn­ar kröf­ur, en ekki þannig að þær nálg­ist að vera hreint bann.

„Við skor­um á þing­menn allra flokka, og þá ekki síst Sjálf­stæðis­flokks­ins, að lyfta umræðu upp úr hjól­för­um efa­semd­ar­hyggju og ómál­efna­legra sjón­ar­miða í far­veg skyn­semi og sann­girni. Ef við ber­um gæfu til að hafa póli­tíska for­ystu í þessu mik­il­væga máli verður fisk­eldi í sátt við nátt­úr­una far­sælt verk­efni en ekki vanda­mál. Þing­menn og ráðherr­ar þurfa að stíga inn í umræðuna og axla ábyrgð sem lög­gjafi. Í þessu er ekki í boði að skila auðu.“

Grein­ina í heild sinni má lesa í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: