Fundað í atvinnuveganefnd um laxeldið

mbl.is/Helgi Bjarnason

Fund­ur hef­ur staðið yfir í morg­un í at­vinnu­vega­nefnd Alþing­is um lax­eldið í land­inu. Fund­ur­inn stend­ur enn yfir en Halla Signý Kristjáns­dótt­ir, þingmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, óskaði eft­ir fundi í nefnd­inni í lok síðasta mánaðar í kjöl­far þess að úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála felldi úr gildi starfs­leyfi tveggja lax­eld­is­fyr­ir­tækja á Vest­fjörðum.

Halla Signý óskaði eft­ir því að á fund­inn í at­vinnu­vega­nefnd yrðu boðaðir full­trú­ar frá um­hverf­is­ráðuneyt­inu, sjáv­ar­út­vegs­ráðuneyt­inu og Mat­væla­stofn­un en gest­ir hafa verið á fund­in­um í morg­un. Þegar ósk­in um fund­inn kom fram sagði Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir, formaður nefnd­ar­inn­ar og þingmaður Vinstri hreyf­ing­ar­inn­ar - græns fram­boðs, að hún teldi rétt að bíða með það að funda þar til ljóst væri til hvaða aðgerða stjórn­völd ætluðu að grípa til enda lægi fyr­ir að málið væri til um­fjöll­un­ar á þeim vett­vangi.

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, lagði fram frum­varp á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær um breyt­ing­ar á lög­um um fisk­eldi þess efn­is að ráðherra fái heim­ild til þess að veita rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða við ákveðnar aðstæður. Frum­varpið var kynnt í þing­flokk­um stjórn­ar­flokk­anna í gær og var sent öðrum þing­flokk­um í morg­un. Bú­ist er við að frum­varpið verði lagt fram á þingi við fyrsta tæki­færi og áhersla lögð á skjóta af­greiðslu þess.

mbl.is