Geti ekki hindrað óþarfa sóun verðmæta

Í frumvarpinu er lagt til að bætt verði nýrri málsgrein …
Í frumvarpinu er lagt til að bætt verði nýrri málsgrein við 21. C.-grein laganna, en þar er fjallað um starfsemi fiskeldisstöðva án rekstrarleyfis. mbl.is/Ómar Óskarsson

Nýju frum­varpi Kristjáns Þórs Júlí­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, er ætlað að lag­færa með al­menn­um hætti ann­marka á lög­um um fisk­eldi til framtíðar að því er fram kem­ur í grein­ar­gerð með frum­varp­inu, sem nú hef­ur verið birt á vef Alþing­is.

Sá ann­marki er sagður birt­ast í því að sam­kvæmt gild­andi lög­um sé eina úrræði Mat­væla­stofn­un­ar, í þeim til­vik­um sem rekstr­ar­leyfi fisk­eld­is­stöðvar er fellt úr gildi, að stöðva starf­semi henn­ar. Þannig hafi stjórn­völd eng­in úrræði til að koma í veg fyr­ir mögu­lega óaft­ur­kræfa og óþarfa sóun verðmæta né held­ur gæta meðal­hófs.

Rekstr­ar­leyfi til allt að tíu mánaða

Í frum­varp­inu er lagt til að bætt verði nýrri máls­grein við 21. C.-grein lag­anna, en þar er fjallað um starf­semi fisk­eld­is­stöðva án rekstr­ar­leyf­is.

Í til­lagðri máls­grein er mælt fyr­ir um að sé rekstr­ar­leyfi fellt úr gildi geti ráðherra, að feng­inni um­sögn Mat­væla­stofn­un­ar, enda mæli rík­ar ástæður með því, gefið út rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða til allt að tíu mánaða, ber­ist um­sókn þess efn­is frá hand­hafa hins niður­fellda leyf­is inn­an þriggja vikna frá því að leyfi var fellt niður.

Um­rædd um­sókn, um rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða, skuli af­greidd eins fljótt og mögu­legt er, og eigi síðar en fjór­um vik­um eft­ir að hún ber­ist. Þá skuli í henni til­greina með skýr­um hætti til­gang rekstr­ar­leyf­is til bráðabirgða, ástæður þess og fyr­ir­hugaðar aðgerðir á gild­is­tíma bráðabirgðal­eyf­is­ins.

Skuli ekki stöðva rekst­ur fisk­eld­is­stöðvar

Enn frem­ur seg­ir í frum­varp­inu, að þrátt fyr­ir það sem kveðið sé á um í nú­gild­andi fyrstu máls­grein 21. C.-grein­ar lag­anna, skuli Mat­væla­stofn­un ekki stöðva rekst­ur fisk­eld­is­stöðvar fyrr en fyr­ir liggi hvort sótt verði um rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða.

„Ber­ist slík um­sókn um rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða skal ekki stöðva rekst­ur meðan um­sókn er til meðferðar hjá ráðherra. Rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða skal vera efn­is­lega inn­an marka þess leyf­is sem áður var í gildi. Ákvörðun um rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða má byggja á gögn­um sem aflað hef­ur verið við und­ir­bún­ing þess rekstr­ar­leyf­is sem fellt var úr gildi,“ seg­ir í frum­varp­inu.

Heim­ilt að end­urút­gefa einu sinni

Þá geti ráðherra sett rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða þau skil­yrði, sem þörf er á svo til­gang­ur leyf­is­ins ná­ist, svo sem um sam­drátt þeirr­ar starf­semi sem þegar er fyr­ir hendi, um tíma­fresti vegna úr­bóta eða um tíma­mörk máls­höfðunar eða annarra at­hafna fyr­ir dómi sem eru á for­ræði aðila.

Tekið er fram að rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða sam­kvæmt frum­varp­inu verði heim­ilt að end­urút­gefa einu sinni. Rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða verði enn frem­ur fullnaðarúr­lausn á stjórn­sýslu­stigi.

mbl.is