Lög um fiskeldi samþykkt á Alþingi

Frumvarpið var lagt fram við upphaf þingfundar í dag eftir …
Frumvarpið var lagt fram við upphaf þingfundar í dag eftir hádegi og samþykkt á tólfta tímanum í kvöld. mbl.is/​Hari

Frum­varp Kristjáns Þórs Júlí­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, um breyt­ing­ar á lög­um um fisk­eldi, var samþykkt á Alþingi á tólfta tím­an­um í kvöld. Frum­varpið fel­ur í sér heim­ild til ráðherra til þess að gefa út rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða vegna fisk­eld­is.

Frum­varpið var samþykkt með 45 greidd­um at­kvæðum. Sex sátu hjá og nefndu þeir þing­menn helst þá ástæðu að þeir væru ósátt­ir við hversu hröð málsmeðferðin var. 

Ráðherra sagðist vera þakk­lát­ur fyr­ir þann skiln­ing sem þing­menn hafa sýnt frum­varp­inu. „Ég geri mér grein fyr­ir að þetta mál er und­ir mik­illi pressu en ég ít­reka þakk­ir fyr­ir þann skiln­ing sem þing­menn sýna því að það er brýn nauðsyn að bregðast skjótt við,“ sagði Kristján Þór meðal ann­ars.

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra.
Kristján Þór Júlí­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráðherra. mbl.is/​​Hari

Frum­varpið var lagt fram eft­ir að úr­sk­urðar­nefnd um um­hverf­is- og auðlinda­mál ógilti bæði starfs- og rekstr­ar­leyfi Fjarðalax og Arn­ar­lax fyr­ir fisk­eldi í Pat­reks­firði og Tálknafirði.

Ráðherra lagði fram frum­varpið við upp­haf þing­fund­ar í dag eft­ir há­degi. Áður fór fram fund­ur í at­vinnu­vega­nefnd Alþing­is. Þing­fundi var frestað laust eft­ir klukk­an 18 og hófst þá aft­ur fund­ur í at­vinnu­vega­nefnd. Þing­fund­ur hófst aft­ur klukk­an kortér yfir tíu í kvöld þar sem önn­ur og þriðja umræðu fóru fram áður en frum­varpið var samþykkt.

Helga Vala Helga­dótt­ir kvaddi sér hljóðs við at­kvæðagreiðslu um frum­varpið og sagði hún að verið sé að bregðast við með ófull­nægj­andi hætti og kallaði hún at­b­urðarás síðustu daga stjórn­sýslu­klúður. „Hvað ger­ist svo? Hvenær þurf­um við að lag­færa það sem við ger­um hér í dag?“ spurði þingmaður­inn.

Frum­varpið öðlast þegar gildi og verður sent rík­is­stjórn­inni sem lög frá Alþingi. 

mbl.is